Abstract
dc:description.abstractFjölskyldu- og menningarhátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ fagnar 20 ára afmæli árið 2019. Í ljósi bókunar menningarráðs Reykjanesbæjar um að láta kanna viðhorf bæjarbúa til hátíðarinnar annars vegar og hins vegar um að móta stefnu fyrir hátíðina tók rannsakandi ákvörðun um að framkvæma slíka viðhorfsrannsókn ásamt því að gera tilraun til að mæla og greina þá upplifun sem þátttakendur í hátíðinni verða fyrir. Til verksins var notast við EES kvarðann (e. Event Experience Scale) sem er nýlegt mælitæki hannað til að mæla upplifun á viðburðum og er í notkun víða um heim til að afla aukinna gagna um viðfangsefnið (Richards, Toepoel og Geus, 2015). Að auki var reynt að leggja mat á ýmis önnur áhrif af völdum hátíðarinnar svo sem félagsleg áhrif. Rannsóknaraðferðin var í formi tveggja spurningakannana og gætti mikils samræmis í niðurstöðum sem voru þær helstar að mikill meirihluti þátttakenda reyndist mjög eða frekar ánægður með hátíðina. Flestir þátttakendur álitu hana hafa jákvæð áhrif á ímynd bæjarins auk ýmissa jákvæðra samfélagslegra áhrifa svo sem aukinnar samkenndar á meðal íbúa. Þá taldi rúmur helmingur þátttakenda að áhrifa hátíðarinnar gætti lengur en hún varði, að hún hefði haft jákvæð áhrif á líðan þeirra og að hún gerði Reykjanesbæ að betri stað til að búa á. Upplifun af þrennum toga mældist: tilfinningaleg, vitsmunaleg og líkamleg. Nokkra athygli vakti, í ljósi annars mjög jákvæðra niðurstaðna, að upplifun mældist að meðaltali fremur hlutlaus. Möguleg skýring er sú að flestir gesta hátíðarinnar eru fastagestir sem taka þátt í hátíðinni árlega. Niðurstöðurnar eru gagnlegt innlegg inn í framtíðarstefnumótun hátíðarinnar. Að mati rannsakanda er Ljósanótt auðlind sem býr yfir möguleikum til að gefa enn frekar af sér. Lykilorð: Upplifun, hátíð, viðburður, Ljósanótt, Reykjanesbær
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðlaug María Lewis 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/34276
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/34276