Back to search

Bifröst University

Fjölmenningarlegt vinnuumhverfi á Suðurnesjum : erum við að glíma við vandamál í atvinnulífinu vegna erfiðleika í fjölmenningalegum samskiptum?

Abstract

dc:description.abstract

Fjölmenningarlegt vinnuumhverfi er mjög algengt á Íslandi nú til dags. Í rannsókn þessari er leitast við að fá sem mest af upplýsingum um bakgrunn og stöðu innflytjenda í atvinnu á Suðurnesjum, hvernig samskipti ganga og hvort menningar eða tungumálerfiðleikar hafi áhrif á framleiðni. Til þess var gerður spurningalisti sem sendur var forsvarsmönnum nokkurra fyrirtækja á Suðurnesjum. Starfsmannafjöldi þeirra var frá 20 til 250 manns. Einnig var sendur listi til stjórnenda til að fá þeirra nálgun. Í upphafi ritgerðar er fjallað almennt um hvað er innflytjandi og hvað er atvinnuleyfi og skoðað samstarf í fjölmenningarlegu umhverfi ásamt atvinnuleysistölum. Til þess var stuðst við fræðigreinar og valið efni bæði af netinu og leitað var heimilda í bókum. Fjallað er um niðurstöðu hverrar spurningar og efnið í heild sinni. Rannsóknarspurningin er. “Erum við að glíma við vandamál í atvinnulífinu vegna erfiðleika í fjölmenningalegum samskiptum?” Niðurstaðan bendir til að stundum geti verið erfitt að koma upplýsingum rétt til starfsmanna vegna tungumálaerfiðleika. Einnig sýnir niðurstaðan meðal annars að Pólverjar eru mun líklegri til að dvelja lengur á Íslandi en aðrar þjóðir. Stjórnendur eru sammála um mikilvægi þessa erlenda vinnuafls.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórdís Bára Guðmundsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/34265
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/34265

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórdís Bára Guðmundsdóttir 1994-. Fjölmenningarlegt vinnuumhverfi á Suðurnesjum : erum við að glíma við vandamál í atvinnulífinu vegna erfiðleika í fjölmenningalegum samskiptum?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/34265