Bifröst University
Sannreyna, staðfesta, afsanna og deila : hefur hlutverk og verklag fjölmiðla (með vefmiðla) breyst með aukinni notkun samfélagsmiðla?
Abstract
dc:description.abstractFjölmiðlar spila stórt hlutverk í lífi okkar, hlutverk þeirra er að halda okkur upplýstum og sýna okkur málefni frá mismunandi sjónarhornum. Notkun almennings á samfélagsmiðlum hefur aukist og hafa fjölmiðlar þurft að taka tillit til þessarar notkunar meðal annars til þess að ná til fjöldans. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna með eigindlegri rannsóknaraðferð hvort hlutverk eða verklag fjölmiðla sem halda úti vefmiðlum hafi breyst með þessari auknu notkun á samfélagsmiðlum, hvernig fjölmiðlar nýta samfélagsmiðla og hvað hefur áhrif á hinar ýmsu ákvarðanir sem þarf að taka í kringum þá notkun. Rannsóknin var framkvæmd með því að fá fréttastjóra og fréttamenn sem starfa hjá fjölmiðlum sem halda úti vinsælustu vefmiðlum landsins til að svara spurningalista um rannsóknarefnið ásamt því að nýta heimildir úr bókum, greinum og af vefsíðum sem styðja við rannsóknarefnið og skýra það frekar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að hlutverk fjölmiðla hefur ekki tekið breytingum á meðan verklag hefur aðlagað sig notkun samfélagsmiðla og veru almennings þar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhanna María Sigmundsdóttir 1991-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/32482
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/32482