Back to search

Bifröst University

Verðmyndun á íslenskum tónlistarflutningi við skemmtanahald : hvað kostar að láta skemmta sér?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar var að kanna hvað stjórnar verðmyndun á íslenskum tónlistarflutningi við skemmtanahald á Íslandi. Framkvæmd var eigindleg rannsókn í formi viðtala þar sem rætt var við fimm viðmælendur sem hafa ekki einvörðungu reynslu heldur djúpan skilning á hvaða þættir stjórna því sem til rannsóknar er. Rannsóknin sem slík gæti þannig gefist vel sem hagkvæmur fyrirbúnaður fyrir umfangsmeiri megindlegar rannsóknar eða gefið tilefni til þess að draga fram í dagsljósið ákveðin viðfangsefni sem ekki hafa verið gerð skil á áður. Með verðmyndun er átt við það samspil milli framboðs og eftirspurnar á frjálsum markaði sem ákvarðar verð og magn vara og þjónustu sem skipta um hendur í hagkerfinu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að það sem stýrir verðmyndun á íslenskum tónlistarflutningi við skemmtanahöld eru saga, vinsældir, orðspor og efnahagsleg staða samfélagsins. Þá leiddu rannsóknir það í ljós að það verð sem tónlistarflytjendur taka fyrir að „skemmta öðrum“ hefur að sumu leyti staðið í stað í að minnsta kosti tvo áratugi og er með engu móti í takt við verðhækkanir samfélagsins. Því er verð á íslenskum tónlistarflutningi við skemmtanahald einungis 70% af því sem það ætti að vera ef miðað væri við vísitölu neysluverðs. Með hliðsjón af niðurstöðum rannsóknarinnar dró höfundur þá ályktun að mikilvægt væri fyrir íslenska tónlistarflytjendur að sýna hvor öðrum samhug í baráttunni til aukinna launa. Í íslensku samfélagi væru vankantar á að tónlistarflytjendur hefðu hugrekki til slíks en með hliðsjón af útlögðum kostnaði, æfingum sem lægju að baki og annarra þátta þá væri ærið tilefni til þess að laga þá annmarka.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sverrir Bergmann Magnússon 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32446
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32446

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sverrir Bergmann Magnússon 1980-. Verðmyndun á íslenskum tónlistarflutningi við skemmtanahald : hvað kostar að láta skemmta sér?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32446