Back to search

Bifröst University

Umhverfisstefna í hótelrekstri : geta íslenskir gististaðir nýtt sér umhverfishyggju til að auka arðsemi?

Abstract

dc:description.abstract

Er hægt að nýta umhverfisstefnu til þess að bæta stöðu hótela á Íslandi? Með tillits til áhrifa mannsins á umhverfið okkar er mikilvægt að takmarka óþarfa mengun. Þetta á sérstaklega við um ferðaþjónustu, þar sem ferðalög eru mjög mengandi er það skylda okkar sem reka ferðaþjónustufyrirtæki að takmarka þessa mengun eftir bestu getu. En ekki er það bara siðferðisleg skylda heldur hefur það einnig reynst rekstrarlega skynsamlegt. Erlend fræði bendir til þess að umhverfisstjórnun og skýr umhverfisstefna sé arðbær í öðrum löndum og var ætlunin að rannsaka hvort sambærileg niðurstaða fengist á Íslandi. Þessi erlendi fræði var tekin saman og borin saman við íslenska fræði. Svo voru viðtöl framkvæmd við stjórnendur mismunandi gerða hótela á Íslandi til að athuga hvort upplifun erlendis stemmi við upplifun á Íslandi. Niðurstöður viðtalanna virðast vera í takt við upplýsingar erlendis. Íslensk hótel hafa verið að nýta sér sömu aðferðir og erlendir aðilar til að nota umhversstefnu sína til að spara útgjöld og eru einnig mörg hótel á Íslandi sem sinna þessum málum ekki , þó þau gætu grætt á því. Helstu leiðirnar til að spara í rekstri með umhverfisstefnu eru að takmarka útgjöld vegna rafmagns- og vatnsnotkunar og flokka sorp til að lækka útgjöld. Einnig er markaðs forskot sem fylgir þessari stefnu og vilja margir neytendur á Íslandi versla við umhverfisvottuð ferðaþjónustufyrirtæki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ísak Eyfjörð Arnarson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32416
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32416

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ísak Eyfjörð Arnarson 1997-. Umhverfisstefna í hótelrekstri : geta íslenskir gististaðir nýtt sér umhverfishyggju til að auka arðsemi?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32416