Back to search

Bifröst University

Hvað felst í orðinu almannahagsmunir í 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála? Er mögulega þörf á breytingum?

Abstract

dc:description.abstract

Í 2. mgr. 95. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 er að finna heimild til að úrskurða sakborning í gæsluvarðhald ef til staðar er sterkur grunur um að hann hafi framið brot sem að lögum getur varðað allt að 10 ára fangelsi, enda sé brotið þess eðlis að ætla megi að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Meginmarkmiðið með þessari rannsókn er að gera grein fyrir hvað felst í hugtakinu „almannahagsmunir“. Orðalag ákvæðisins gefur til kynna að til staðar þurfi að vera þrjú skilyrði til að heimilt sé að úrskurða sakborning í gæsluvarðhald á grundvelli 2. mgr. 95. gr. sml. Það er yfirleitt auðvelt að gera sér grein fyrir hvort tvö fyrstu skilyrðin séu uppfyllt. Það er erfiðara að átta sig á því hvort þriðja skilyrði sé uppfyllt enda um frekar matskennt skilyrði að ræða. Þó eru ákveðin grunnsjónarmið sem hægt er að hafa í huga þegar verið er leggja mat á hvort gæsluvarðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Hér mun ég leitast við að skoða þessi grunnsjónarmið sem koma til skoðunar þegar verið er að leggja mat á það hvort skilyrðið um almannahagsmuni sé uppfyllt. Í lokin mun vera farið í að skoða framkvæmd Mannréttindadómstólsins, og einnig verður þeirri spurningu velt upp hvort þörf gæti verið á breytingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Dís Knudsen Sigurjónsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31916
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31916

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Dís Knudsen Sigurjónsdóttir 1991-. Hvað felst í orðinu almannahagsmunir í 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála? Er mögulega þörf á breytingum?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31916