Bifröst University
Stefnumótun og framtíðarsýn svæðisáætlana sveitarfélaga í úrgangsmálum : er samhengi á milli aðferðafræðinnar og árangurs
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Í þessari rannsókn voru tvær svæðisáætlanir um meðhöndlun úrgangs á Íslandi skoðaðar. Markmiðið var að athuga hvort að verkefnastjórn þeirra hafi stuðst við viðurkenndar aðferðir við stefnumótun og framtíðarsýn svæðisáætlananna. Þá var einnig skoðað hvort samhengi sé á milli aðferðafræði sem er beitt í stefnumótunarvinnu og árangurs sveitarfélaga við meðhöndlun úrgangs. Þau lög sem eru í gildi um meðhöndlun úrgangs taka mið af rammatilskipun Evrópuráðs(2008/98/EB). Umhverfis- og auðlindaráðherra gefur út almenna stefnu um meðhöndlun úrgangs. Sú stefna er höfð til hliðsjónar við gerð svæðisáætlana sem sveitarfélög/landshlutar geta sameinast um að gera. Vandamál sem fylgja neysluvenjum mannsins valda umhverfi og lífríki skaða og ef ekkert er að gert getur skaðinn orðið óafturkræfur (EEA, 2018). Í stefnumótunarskýrslu um úrgangsmál sem unnin var fyrir sveitarfélagið Bláskógabyggð kemur fram að almenningur er orðinn mjög meðvitaður um þetta vandamál og er tilbúinn í breytingar (Elísabet Björney Lárusdóttir, 2018). Því er nauðsynlegt að flokkunarmöguleikar séu til staðar á úrgangi, endurnýtingu og endurvinnslu á honum (Umhverfisstofnun, ust.is, 2018). Niðurstaða rannsóknarinnar leiddi í ljós að ekki var stuðst með meðvituðum hætti við aðferðafræði í stefnumótun og framtíðarsýn svæðisáætlananna. Hins vegar var greinilegt samhengi á milli aðferða við gerð stefnumótunar og árangurs þeirra. Þegar svæðisáætlanirnar voru mótaðar var tekið mið af landsáætlun um meðhöndlun úrgangs og þeim lögum og reglugerðum sem um þær giltu á þeim tíma. Í Landsáætluninni er ekki að finna aðgerðir til innleiðingar og eftirfylgni sem er lykillinn að vel heppnaðri breytingastjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bjarni Daníel Daníelsson 1967-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31888
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31888