Bifröst University
Jákvætt viðhorf og góðir verkferlar : áhrifavaldar á niðurstöður nemenda á samræmdum könnunarprófum í 4. bekk
Abstract
dc:description.abstractSkólar eru oft metnir út frá niðurstöðum á samræmdum könnunarprófum og þeir sem koma vel út njóta oft meiri virðingar en aðrir. Markmið rannsóknarinnar var að skoða að hvaða leyti viðhorf umsjónarkennara og skólastjóra til samræmdra könnunarprófa í 4. bekk og skipulag í kringum prófin geti haft áhrif á niðurstöður nemenda. Hingað til hefur ekki verið kannað hvernig skólar undirbúa nemendur undir þessi könnunarpróf og hver viðhorf skólastjóra og umsjónarkennara eru til prófanna. Því var athyglisvert að rannsaka skipulag og viðhorf skólanna. Valdir voru fjórir skólar til þátttöku í rannsókninni, tveir sem eru að jafnaði að ná viðmiðum Menntamálastofnunar á samræmdum könnunarprófum í 4. bekk og tveir sem hafa að jafnaði ekki náð þeim. Viðtöl voru tekin við átta einstaklinga, skólastjóra og umsjónarkennara í hverjum skóla. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna mun á milli skólanna sem tóku þátt í rannsókninni. Skólastjórar og umsjónarkennarar þeirra skóla sem að jafnaði ná viðmiðum á samræmdum könnunarprófum í 4. bekk hafa jákvæðara viðhorf gagnvart prófunum. Í þeim skólum er unnið skipulega að undirbúningi prófanna með mismunandi fundum og samstarfi, skólastjórarnir hafa miklar væntingar til nemenda um árangur og hvetja umsjónarkennara og nemendur til að sýna góðan árangur. Umsjónarkennarar undirbúa nemendur markvisst fyrir prófin og hafa yfirfarið námsefni með tilliti til samræmdra könnunarprófa. Stjórnendur hafa tryggt að allt umhverfi prófanna sé eins fyrirséð og mögulegt er. Þrátt fyrir þessar ólíku áherslur og viðhorf er ekki eins og hinir skólarnir sinni ekki prófunum. Þeir leggja bara ekki eins mikila áherslu á þau og viðhorf til prófanna eru ekki jákvæð. Það er hins vegar sameiginlegt öllum þátttökuskólunum að þeir huga allir vel að líðan og velferð nemenda. Þeir vilja nemendum allt það besta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eva Björk Sveinsdóttir 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31599
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31599