Bifröst University
Er svipting ökuréttar fyrir að veita ekki atbeina við töku lífsýna samrýmanleg þagnarréttinum?
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur Markmið með þessari ritgerð er að kanna hvort svipting ökuréttar fyrir að neita að veita atbeina við töku lífsýna brjóti í bága við þagnarrétt sakborninga. Til að svara þeirri spurningu er sett fram skilgreining á inntaki þagnarréttarins sem styðst við réttarsögulega umfjöllun og umfjöllun um réttarframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu. Réttarframkvæmd Mannréttindadómstólsins er greind og borin saman við viðeigandi dómafordæmi á Íslandi. Við þann samanburð kemur í ljós að ökuréttarsvipting fyrir að neita að veita atbeina við töku lífsýna felur ekki í sér ólögmæta þvingun. Þvingunin sem felst í framangreindri sviptingu ökuréttar er jafnframt í samræmi við þau sjónarmið sem Mannréttindadómstóllinn leggur að jafnaði til grundvallar við mat á því hvort þvingun varði við 6. gr. Sáttmálans um réttláta málsmeðferð. Er framangreind niðurstaða í samræmi við þá tilhneigingu íslenskra dómstóla að vísa í úrlausnir Mannréttindadómstólsins í málum sem varða við gildissvið Mannréttindasáttmála Evrópu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Daníel Örn Davíðsson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/31521
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/31521