Back to search

Bifröst University

Er grundvöllur fyrir góðgerðarfélag sem samanstendur af fyrirtækjum og íþróttafólki sem sér um söfnun og útdeilingu styrkja til einstaklinga?

Abstract

dc:description.abstract

Umhverfi góðgerðarfélaga hér á landi og erlendis er umhverfi fullt af ógnum, breytingum og tækifærum. Í þessari rannsókn var markmiðið að varpa ljósi á þessa þætti, skoða þá út frá markaðsgreiningu og athuga hvort grundvöllur sé fyrir nýju góðgerðarfélagi sem að sameinar krafta fyrirtækja og íþróttafólks. Til þess að varpa sýn á það voru tekin tvö sérfræðiviðtöl og lögð viðhorfskönnun fyrir mögulegan markhóp til þess að skoða væntanleg samkeppnisforskot sem og mögulega uppsetningu þessa félags. Helstu niðurstöður eru þær að gegnsæi er ekki nægilegt miðað við kröfur þessara tveggja markhópa og þar af leiðandi ekki næg meðvitund til staðar hjá markhópunum. Áhugi er á þessu mögulega góðgerðarfélagi hjá báðum markhópum og einnig er markaðurinn ekki mettaður enda stór hluti úr báðum hópum sem vilja styrkja fleiri málefni og því er grundvöllur fyrir því að skoða stofnun slíks félags nánar. Lykilþættir árangurs fyrir þetta tiltekna félag er að sýna gegnsæi, uppbygging sterkra tengsla milli aðildaraðila, að nýta íþróttafólkið í að gera félagið áberandi og leiða það áfram með leiðandi forystu að leiðarljósi. Með stofnun slíks félags væri mögulega hægt að hafa áhrif á umhverfi góðgerðarmála hér á landi er varðar gegnsæi, með það að markmiði að byggja upp betra góðgerðarsamfélag.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Björgvin Páll Gústavsson 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/31511
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/31511

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Björgvin Páll Gústavsson 1985-. Er grundvöllur fyrir góðgerðarfélag sem samanstendur af fyrirtækjum og íþróttafólki sem sér um söfnun og útdeilingu styrkja til einstaklinga?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/31511