Back to search

Bifröst University

Hvort gefur betri raun í þróunarsamvinnu, verkefnanálgun eða geiranálgun?

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er á sviði þróunarhagfræði og í henni verður skoðaður munurinn á verkefnanálgun og geiranálgun í þróunarsamvinnu. Ritgerðin byrjar á almennri umfjöllun um þróunarsamvinnu, sögulegan bakgrunn þróunaraðstoðar og ástæðurnar sem að liggja henni að baki. Í ritgerðinni verður einnig farið yfir einkenni þróunarlanda, markmið þróunaraðstoðar og neikvæð áhrif spillingar á þróunarlönd. Báðar nálganirnar verða skýrðar og farið verður yfir kosti þeirra og galla. Til að átta sig betur á nálgununum verða tekin tvö dæmi fyrir hvora nálgun um sig. Dæmin voru valin með það að markmiði að geta sýnt fram bæði á tækifæri og áskoranir sem fylgja nálgununum. Að lokum verða ofangreind atriði dregin saman og út frá þeim verður ályktað um hvor nálgunin gefi betri raun. Í niðurstöðum var komist að því að geiranálgun hafi betri von um að ná markmiðum þróunaraðstoðar. Hins vegar bentu niðurstöðurnar einnig til þess að geiranálgun sé ekki alltaf besti kosturinn í þróunarsamvinnu og að í sumum tilfellum geti verkefnanálgun hentað betur. Báðar nálganirnar höfðu möguleikann til að bera góðan árangur eða slæman. Rannsóknin bendir til þess að lykilatriðin að árangurríkri þróunaraðstoð felist í samhljóm og góðu samstarfi á milli viðtökulands og gjafalands.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Skapti Jónsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29752
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29752

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Skapti Jónsson 1989-. Hvort gefur betri raun í þróunarsamvinnu, verkefnanálgun eða geiranálgun?. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29752