Abstract
dc:description.abstractÍ ágúst 2017 var starfsfólki ferðaþjónustufyrirtækisins Gray Line Iceland tilkynnt um samruna félagsins við annað ferðaþjónustufyrirtæki, Iceland Travel. Höfundur var þá starfandi sölumaður hjá fyrirtækinu og greip hugmyndina á lofti. Markmiðið þessa verkefnis er því að skoða líðan, viðhorf og væntingar starfsfólks til samruna. Leitast er eftir að skoða þá áhersluþætti sem vert er að styðjast við þegar stefnt er á samruna og auka líkur á árangri hans fyrir alla haghafa. Auk þess er skoðuð almenn starfsánægja starfsfólks Gray Line Iceland og viðhorf til einstakra þátta starfsins ef ekki yrði af sameiningu. Sú varð raunin en í lok október var starfsfólki tilkynnt um að hætt yrði við samrunann. Megindlegum rannsóknaraðferðum var beitt við rannsóknina og gögnum aflað með skoðanakönnun sem send var á starfsfólk með tölvupósti. Til að standa að árangursríkum samruna ætti að leggja áherslu á fagleg vinnubrögð breytingastjórnunar, samvinnu og góðan undirbúning og áætlanagerð allra stiga samrunaferlisins. Jafnframt er mikilvægt að leggja áherslu á lykilstarfsmenn, starfsmannamál, virkt og raunsætt upplýsingaflæði og að sameinuð fyrirtæki hafi yfir að búa líkri fyrirtækjamenningu, séu að svipaðri stærð og hafi svipaða framtíðarsýn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásta Sóllilja Karlsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29746
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29746