Abstract
dc:description.abstractFramkvæmd var rannsókn meðal ferðamanna í Stykkishólmi í sumarlok 2017. Viðfangsefnið var að kanna viðhorf ferðamanna til hugsanlegra jarðhitabaða á svæðinu og hvort þau myndu hafa áhrif á ferðahegðun þeirra. Mikið af heitu vatni fannst við Hofstaði 1997, sem er bær rétt við Stykkishólm. Vatnið var nýtt til hitaveitu í Stykkishólmi og nágrenni. Eiginleikar vatnsins þykja einstakir samkvæmt rannsókn dr. Hrefnu Kristmannsdóttur jarðvísindamanns en vatninu svipar til vatnsins í Baden Baden heilsuböðunum í Þýskalandi. Stuðst var m.a. við hugtök tengd heilsuferðamennsku en heilsu- og vellíðunarferðaþjónusta er nýleg ferðaþjónustugrein hér á landi, sem vaxið hefur ört undanfarin ár. Höfundur taldi einnig mikilvægt að kanna hvað orsakar vinsældir áfangastaða en með markhópagreiningu, þ.e. greiningu á samsetningu ferðamanna, fást m.a. upplýsingar um hvers vegna ferðamenn velja einn stað fremur en annan. Unnið var með blandaða rannsóknaraðferð, megindlega og eigindlega. Spurningakönnun var lögð fyrir 120 ferðamenn sem gistu á hótelum í Stykkishólmi í lok ágúst 2017, 97 svör bárust. Þrjú viðtöl voru tekin við fólk með sérþekkingu á ferðaþjónustugreininni. Helstu niðurstöður leiddu í ljós mikinn áhuga ferðamanna á jarðhitaböðum og töldu flestir líklegt að þeir myndu lengja dvöl sína væru þau í boði í og við Stykkishólm. Einnig fengust upplýsingar um hvaða afþreying ferðamönnum líkaði á svæðinu auk upplýsinga um þjóðerni, aldur og menntun. Viðmælendur voru sammála um að flestir ferðamenn vilja upplifa íslensk jarðhitaböð en markaðssetning áfangastaða og samstarf ferðaþjónustuaðila er lykilatriði í þróun nýrra áfangastaða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Unnur Steinsson 1963-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29745
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29745