Back to search

Bifröst University

,,Hann er hetjan sem þú þarfnast" : birtingarmynd kynjanna í teiknimyndum

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er rannsakað hverjar birtingarmyndir kynjanna eru í teiknimyndum (e. animated films). Notast verður við kvikmyndir leyfðar innan níu ára aldurs en börn á þessum aldri eru ekki með þroska til þess að sjá faldar staðalímyndir, kynhlutverk og kynjamisrétti í kvikmyndum. Notast er við þemagreiningu (e. thematic analysis) þar sem sjö kvikmyndir eru greindar í mynstur, þær flokkaðar og túlkaðar. Þemagreiningin er síðan fléttuð saman við lykilhugtökin karlmennska og kvenleiki og við fyrri rannsóknir á kynhlutverkum og stöðluðum kynjaímyndum í kvikmyndum. Það er einkum stuðst við rannsóknir frá Geena Davis Institute on Gender in Media sem hafa lagt til mikla þekkingu á sviði kynjamisréttis í kvikmyndum síðastliðin þrettán ár. Einnig verður dægurmenningin skoðuð á sviði fjölmiðla og snert á Disneymenningunni. Þá verður farið ofan í hugtök á borð við vitsmunaþroska, kyngervi, staðalímyndir og kynskemakenninguna. Helstu niðurstöður eru þær að kvikmyndir virðast skiptast upp í tvo flokka. Í fyrsta lagi í teiknimyndir þar sem vantar stelpur en þar er umhyggjumiðuð karlmennska í forystu og konur kyngerðar í aukahlutverkum sem kærustur. Í öðru lagi teiknimyndir þar sem aðalpersónan er kvenhetja sem finnur að öllum líkindum ást. Konur á fullorðinsaldri eru líklegar til að birtast sem mæður í teiknimyndum sem deyja eða koma lítið við sögu á meðan fullorðnir karlmenn eru mikið sýnilegri í teiknimyndum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andrea Björk Möller Óladóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29727
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29727

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andrea Björk Möller Óladóttir 1989-. ,,Hann er hetjan sem þú þarfnast" : birtingarmynd kynjanna í teiknimyndum. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29727