Bifröst University
Við erum að loka, hvers vegna gengur svona vel? Rannsókn á því hvað skýrir góðan árangur við lokun Actavis ehf.
Abstract
dc:description.abstractLokun fyrirtækja eða eininga innan fyrirtækja hefur mikil áhrif fyrir alla starfsmenn. Þegar tilkynnt var um að loka ætti lyfjaverksmiðju Actavis ehf. í Hafnarfirði áttu stjórnendur von á að erfitt gæti reynst að halda verksmiðjunni í rekstri næstu 18 – 24 mánuði, en það var tíminn sem reiknað var með að tæki að flytja framleiðsluna til annarra verksmiðja áður en lokað yrði. Niðurstaðan varð allt önnur. Tímabilið frá því að tilkynnt var um lokun og þar til verksmiðjan lokaði reyndist eitt það besta í sögu Actavis ehf. Þjónusta við viðskiptavini var betri en áður, framleiðsla gekk mjög vel og öryggis- og gæðavitund fór fram úr björtustu vonum. Heilt á litið þá náði verksmiðjan betri árangri í öllum lykilmælikvörðum en nokkru sinni áður. Þessi góði árangur vakti áhuga höfundar á því að rannsaka betur hvaða ástæður lægu að baki því að starfsmenn legðu sig svona fram, þegar ljóst væri að störf þeirra yrðu lögð niður. Við lestur fræðigreina við undirbúning verkefnisins rakst höfundur á fyrirbæri sem kallað er „Closedown Effect“, eða lokunaráhrif. Lokunaráhrif hafa lítið verið rannsökuð, en þær rannsóknir sem gerðar hafa verið virðast benda til þess að verksmiðjur nái oft mjög góðum árangri á tímabilinu frá því að tilkynnt er um lokun og þar til starfsemi lýkur. Þessi nýja þekking breytti nálgun verkefnisins frá því að reyna eingöngu að skilja hvaða aðgerðir stjórnendur Actavis ehf. gripu til yfir að reyna einnig að meta hvort sá árangur sem náðist hjá Actavis ehf. megi skýra sem lokunaráhrif. Við rannsóknina var beitt eigindlegum rannsóknaraðferðum og rannsóknin sett upp sem tilfellarannsókn (e. case study) auk þess sem fyrirliggjandi gögn voru skoðuð. Haldinn var rýnifundur með starfsmönnum frá öllum sviðum Actavis ehf. auk þess sem tekið var viðtal við framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á það hvernig staðið var að lokun verksmiðju Actavis ehf og hvaða lærdóm megi draga af því verkefni og þeim árangri sem náðist og loks hvort árangurinn sem náðist megi skýra sem lokunaráhrif. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að góður undirbúningur áður en tilkynnt er um lokun skiptir miklu máli. Sérstaklega þarf að horfa til þess að auðvelda starfsmönnum að taka ákvörðun um að taka þátt í lokunarverkefninu og hluti af því er að reyna að lágmarka neikvæða umræðu í samfélaginu og bjóða hvata fyrir starfsmenn til að taka þátt. Eins er mikilvægt að lykilstarfsmenn séu með í verkefninu. Að því sögðu þá virðist líklegra en ekki að góðan árangur megi að einhverju leiti skýra sem lokunaráhrif.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kári Steinar Lúthersson 1969-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29720
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29720