Back to search

Bifröst University

Gerðu það sjálf/ur! Leiðarvísir að árangursríkri starfsemi á alþjóðamörkuðum með netvöngum

Abstract

dc:description.abstract

Bætt samskipti og samgöngur hafa í senn gert heiminn aðgengilegri og um leið minni í þeirri merkingu að við höfum meira og betra aðgengi að honum. Alþjóðaviðskipti hafa alla tíð verið mikilvægur þáttur í íslensku atvinnulífi. Samkvæmt helstu kenningum er alþjóðavæðingarferlinu lýst sem löngu hægfara þróunarferli þar sem fyrirtæki fara stig af stigi inn á nýja erlenda markaði. Mitt í miðju á tækni- og samfélagsþróun nútímans er fyrirbærið stafrænn vettvangur eða netvangar (e. platform). Netvangar (e. digital platform) er stafræn tækni sem hefur brúað bilið milli heimsálfa og gert tíma og vegalengdir að afstæðum stærðum. Netvangar eru meðal annars samfélagsmiðlar, efnisveitur og söluvefir. Rannsóknin er tilviksrannsókn (e. case study) sem byggir á eigindlegum aðferðum (e. qualitative research methods). Rannsókninni er ætlað að sýna fram á hvernig íslensk fyrirtæki nýta og geta nýtt sér netvanga til þess að starfa á alþjóðamörkuðum, hvernig það er gert og með hvaða mögulega árangri. Með því að rannsaka sex ólík tilvik er hægt að sækja upplýsingar sem nýta má sem leiðarvísi að árangursríkri leið til alþjóðavæðingar með netvöngum. Helstu niðurstöður eru þær að netvangar geta flýtt fyrir alþjóðavæðingarferli lítilla og meðalstórra íslenskra fyrirtækja með meiri nálægð við markaðinn, betri samskiptum og tengingu við skilgreinda markhópa. Varast skal að líta á heiminn sem eitt markaðssvæði og ekki er nauðsynlegt að vera á öllum netvöngum í einu. Fyrirtæki á fyrirtækjamarkaði (e. business to business), svo kölluðum B2B markaði, ættu að haga markaðsstarfsemi sinni eins og ef þau væru á neytendamarkaði (e. business to consumer), svo kölluðum B2C markaði. Þannig næst betri stjórn á vörunni og betri staðfærsla (e. positioning) á erlendum mörkuðum. Stöðluð markaðsstefna nýtist svo sem stoðgrind fyrir samstarfsaðila og umboðsmenn.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hafsteinn Eyland Brynjarsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29715
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29715

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hafsteinn Eyland Brynjarsson 1983-. Gerðu það sjálf/ur! Leiðarvísir að árangursríkri starfsemi á alþjóðamörkuðum með netvöngum. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29715