Back to search

Bifröst University

Málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar vegna ákvörðunar og framkvæmdar eignarnáms

Abstract

dc:description.abstract

Þegar stjórnvöld taka íþyngjandi ákvarðanir um rétt og/eða skyldu manna ber þeim að vanda til verka og fara að reglum stjórnsýsluréttarins. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að leitast við að gera grein fyrir málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttarins vegna ákvörðunar og framkvæmdar eignarnáms. Rannsóknin felst í því hvort hægt sé að greina þróun málsmeðferðarreglna eftir innleiðingu Mannréttindasáttmála Evrópu þegar handhafar ríkisvaldsins leggja grundvöll að eignarskerðingu, en sérstök áhersla verður lögð á eingarnám vegna flutningskerfis raforku. Við rannsóknina verður notast við hina hefðbundnu lagalegu aðferð sem byggir á réttarheimildum. Teknir voru sérstaklega fyrir þeir dómar sem hafa fallið eftir dóm Hæstaréttar Íslands frá 19. mars 2009 í máli nr. 425/2008 (Brekka), þar sem dómurinn tiltók sérstaklega mikilvægi meðalhófs sem stjórnvald þyrfti að gæta að við ákvarðanatöku og framkvæmd eignarnáms. Rannsóknin leiddi í ljós að ríkari kröfur eru gerðar til stjórnvalda um að fylgja málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttarins við töku stjórnvaldsákvarðana eftir dóm Hæstaréttar Íslands frá 19. mars 2009, í máli nr. 425/2008 (Brekka). Með dómum Hæstaréttar Íslands frá 12. maí 2016, í málum nr. 511, 512, 513 og 541/2016 má greina að dómstólar eru ekki að leggja niður árar í þeim efnum. Dómarnir hafa fordæmisgildi er varðar kröfur sem dómstólar gera til rannsóknarskyldu stjórnvalda, enda er reglan skylda en ekki heimild. Fróðlegt verður að fylgjast með framvindu álitaefna sem tekist var á um í framangreindum málum, með tillit til þess hvort lagning flutningsvirkisins Suðurnesjalínu 2 endi í jörðu eða lofti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ólöf Hildur Gísladóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29171
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29171

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ólöf Hildur Gísladóttir 1978-. Málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttar vegna ákvörðunar og framkvæmdar eignarnáms. 2017. http://hdl.handle.net/1946/29171