Bifröst University
Alcoa Fjarðaál : vægi þjónandi forystu, starfsánægja og sjálfræði í starfi
Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi var gerð til að kanna vægi hugmyndafræði þjónandi forystu hjá Alcoa Fjarðaál og hver birtingamynd þjónandi forystu er innan skipulagsheildarinnar (e. organization), hver er starfsánægja og hvort tengsl eru milli þjónandi forystu og starfsánægju hjá Aloca Fjarðaáli. Sjálfræði, hlutverk og væntingar í starfi og hollusta (e. commitment) við Alcoa Fjarðaál var einnig rannsakað. Mælitækið SLS (Servant Leadership Survey) var notað til að mæla þjónandi forystu. Bakgrunnur rannsóknarinnar er þríþættur og fyrst er að nefna að fáar rannsóknir á vægi þjónandi forystu, starfsánægju og sjálfræði í starfi hafa verið gerðar í iðnfyrirtækjum eins og Alcoa Fjarðaáli. Efnið er áhugavert og góð viðbót við fyrirliggjandi flóru rannsókna á þjónandi forystu. Einnig er áhugavert að rannsaka hver birtingarmynd þjónandi forystu er í fyrirtækinu, eins og sjá má á rannsóknarspurningum sem eru um grunnþætti í rekstri fyrirtækja, það er starfsánægja, sjálfræði, hollusta og væntingar í starfi. Niðurstöður sýna hátt vægi þjónandi forystu hjá Alcoa Fjarðaáli og sterk tengsl eru milli þjónandi forystu og starfsánægju. Eftirfarandi fjórar víddir mældust hæst; efling, ráðsmennska, forgangsröðun í þágu annarra og auðmýkt. Starfsánægja mældist 90,6% og var svarhlutfall 31,0%. Niðurstöður gefa einnig til kynna að þjónandi forysta hafi jákvæð áhrif á starfsánægju og vellíðan starfsmanna almennt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elfa Kristín Sigurðardóttir 1963-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/29116
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/29116