Back to search

Bifröst University

Hvernig á að sameina fyrirtækjamenningu?

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hafa samrunar og sameiningar fyrirtækja verið algengir. Mest hefur verið fjallað um fjárhagslegan og skipulagslegan ávinning af þessum samrunum en minna litið á þær breytingar sem verða á umhverfi starfsmanna. Við sameiningar fyrirtækja þurfa starfsmenn fyrirtækis oft að flytja í annað starfsumhverfi, uppsagnir verða og umtalsverðar breytingar geta orðið á líðan þeirra. Í þessari skýrslu er kannað hvernig fyrirtækjamenning er sameinuð og hvernig til tókst með sameiningu Brunabótafélags Íslands og Samvinnutrygginga. Sameining félaganna er skoðuð út frá kenningum Kotter um átta þrep árangursríkrar breytingastjórnunar. Fyrirtækin voru ekki sameinuð með þær kenningar í huga en áhugavert er að sjá að þrátt fyrir það fylgdu stjórnendur félagsins fjórum af átta þrepum Kotter og nokkrum til viðbótar var fylgt að einhverjum hluta. Framkvæmd var hálfopin viðtalsrannsókn í Vátryggingafélagi Íslands. Rætt var við fjóra starfsmenn sem starfað höfðu hjá Samvinnutryggingum, fjóra sem störfuðu hjá Brunabótafélagi Íslands og fjóra sem ekki höfðu starfað hjá forverum Vátryggingafélagsins. Þá var einnig rætt við núverandi starfsmannastjóra skipulagsheildarinnar og fyrrum forstjóri VÍS var tekinn tali

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karl Ágúst Ipsen 1978-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/2845
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/2845

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karl Ágúst Ipsen 1978-. Hvernig á að sameina fyrirtækjamenningu?. 2009. http://hdl.handle.net/1946/2845