Back to search

Bifröst University

Þetta er bara bévítans hark : veruháttur íslenskra óperusöngvara og upplifun af starfsvettvangi

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin er unnin út frá kenningum Bourdieu þar sem markmiðið er að varpa ljósi á tónlistarveruhátt (e. musical habitus) íslenskra söngvara, kortleggja leikreglur klassíska söngvettvangsins frá sjónarhóli söngvara og varpa ljósi á hvernig íslenskir söngvarar upplifa starf sitt á Íslandi og erlendis. Höfundur er sjálfur klassískt menntaður óperusöngvari og þekkir af eigin reynslu og frásögnum kollega sinna hversu torveld söngbrautin getur verið. Meginefniviður rannsóknar eru hálfopin eigindleg viðtöl við átta söngvara af báðum kynjum. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að viðmælendur höfðu allir notið ríks tónlistaruppeldis í foreldrahúsum og þjálfað tónlistarveruháttinn með söng. Drifhvötin til þess að leggja sönginn fyrir sig virðist aðallega vera ánægjan af því að syngja og leika. Söngvarar færa ýmsar fórnir til að mega fást við það. Þeir læra margir að sætta sig við að vera valdalitlir á vettvanginum, með lítið starfsöryggi, bág kjör og starfsmöguleika. Félagsauður er mikilvægur til þess að verða sér úti um verkefni og jarðarfararsöngur og söngkennsla virðist vera stöðugusta tekjuleiðin á Íslandi. Mögulegar ástæður kulnunar og brotthvarfs úr starfi eru; framkomukvíði, söngtæknileg vandamál, lítið starfsöryggi og sjálfsákvörðunarvald. Kynjamismunun og kynferðisleg áreitni er einnig þekkt vandamál meðal kvenna. Flestir söngvaranna sögðust ekki geta ráðlagt öðrum að velja þennan starfsvettvang.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ása Fanney Gestsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28381
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28381

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ása Fanney Gestsdóttir 1976-. Þetta er bara bévítans hark : veruháttur íslenskra óperusöngvara og upplifun af starfsvettvangi. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28381