Back to search

Bifröst University

Sýnileg stjórnun á Íslandi með áherslu á töflunotkun : árangursþættir og hömlur

Abstract

dc:description.abstract

Sýnileg stjórnun (e. visual management) er stjórnunaraðferð sem nýtur mikilla vinsælda á Íslandi um þessar mundir. Sýnileg stjórnun er hins vegar ekki nýtt hugtak og hefur lengi verið unnið með aðferðir sýnilegrar stjórnunar með ágætis árangri víða erlendis, allt frá fyrri hluta síðustu aldar. Fjölmörg fyrirtæki á Íslandi hafa nú þegar innleitt sýnilegar stjórnunaraðferðir og önnur íhuga innleiðingu. Markmið rannsóknar er að finna hvaða hindranir geta orðið í vegi þegar fyrirtæki taka upp hugmyndafræði sýnilegrar stjórnunar með áherslu á töflunotkun og hvaða aðferðum hægt er að beita til þess að góður árangur náist. Til að komast að niðurstöðu skoðaði höfundur nokkur stærri fyrirtæki á Íslandi sem notast við bæði sýnilega stjórnun og töflustjórnun. Einnig voru tekin viðtöl við nokkra helstu sérfræðinga á Íslandi í hugmyndafræði sýnilegrar stjórnunar. Þessari rannsóknarritgerð er ætlað að svara því hvaða árangri má ná með því að innleiða sýnilega stjórnun með notkun taflna og einnig finna út hvaða helstu hindrunum má búast við þegar tekin er ákvörðun um að innleiða þessa hugmyndafræði innan fyrirtækja. Getur verið að innleiðing sýnilegrar stjórnunar hafi jafnvel jákvæð áhrif á vinnustaðamenningu og samskipti á vinnustað? Niðurstaða rannsóknar gefur til kynna að það skiptir máli hvernig staðið er að innleiðingu sýnilegrar stjórnunar. Töflurnar skipta einnig máli hvað varðar staðsetningu, útlit, mælikvarða og dagskrá. Þá er mikilvægt að halda stutta og daglega fundi við töfluna. Einnig verða stjórnendur fyrirtækja að átta sig á að það skiptir máli hvaða tafla er notuð við hvert viðfangsefni, því tafla er ekki aðeins tafla. Tímasetning innleiðingar getur einnig haft áhrif á framgang. Stjórnendur eru í lykilhlutverki þegar ná skal árangri og því mikilvægt að standa vel að þjálfun þeirra og stuðningi við þá. Eftirfylgni innleiðingar er talin vera einn mikilvægasti þátturinn til að viðhalda árangri. Helstu hindranir sem orðið geta í veginum tengjast fólkinu sem vinna skal eftir töflunni. Þjálfun þess skiptir meginmáli, kennsla í teymisvinnu svo það eigi góð og heilbrigð samskipti. Ef allir þessir þættir eru hafðir í huga við innleiðingu má ná góðum árangri, skapa jákvætt andrúmsloft og skilvirkari vinnustað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigrún Hólm Þórleifsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28368
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28368

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigrún Hólm Þórleifsdóttir 1983-. Sýnileg stjórnun á Íslandi með áherslu á töflunotkun : árangursþættir og hömlur. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28368