Back to search

Bifröst University

Hver er upplifun íslenskra alþingiskvenna af fjölmiðlum og fjölmiðlaumfjöllun?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu lokaverkefni eru kynntar niðurstöður rannsóknar á upplifun íslenskra alþingiskvenna til fjölmiðla og fjölmiðlaumfjallana um störf þeirra. Tiltölulega jafnt kynjahlutfall ríkti á þingi á þeim tíma sem rannsóknin var unnin og var markmið rannsóknarinnar að varpa ljósi á upplifun alþingiskvenna sem viðmælenda í fjölmiðlum. Beitt var eigindlegum rannsóknaraðferðum við vinnslu verkefnisins og gagna aflað með viðtölum við fjórar konur sem störfuðu á Alþingi á því kjörtímabili sem var yfirstandandi þegar rannsóknin var unnin. Tilgangur rannsóknarinnar var að ná fram viðhorfi og upplifum viðmælenda til fjölmiðla. Helstu niðurstöður benda til þess að mun oftar sé leitað til karla í stjórnmálum þegar ræða á tiltekin málefni er varða störf þings og ríkisstjórnar. Skýringuna má að stórum hluta rekja til þess að löng hefð er fyrir því að aðallega karlmenn gegni æðstu embættum innan ríkisstjórnar og þings. Enn virðist ríkja sú tvíhyggjuhugmynd að karlmenn séu hæfari þegar kemur að stjórnmálum og konur eigi að einbeita sér frekar að mýkri málum. Enn þá eru ríkjandi hugmyndir um konur sem mæður og húsmæður. Þegar kemur að stjórnun stærri ráðuneyta á borð við forsætis- og fjármálaráðuneyti, sitja karlmenn þar mun oftar á stóli og því leiti fjölmiðlar óhjákvæmilega frekar eftir viðtölum við þá. Þó kom fram að þegar konur stýrðu téðum ráðuneytum jókst hlutur stjórnmálakvenna sem viðmælenda í fjölmiðlum ekki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Bylgja Einarsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/28348
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/28348

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Bylgja Einarsdóttir 1979-. Hver er upplifun íslenskra alþingiskvenna af fjölmiðlum og fjölmiðlaumfjöllun?. 2017. http://hdl.handle.net/1946/28348