Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig íslenskar skipulagsheildir nota straumlínustjórnun. Í rannsókninni voru fjórar skipulagsheildir úr mismunandi starfsstéttum skoðaðar. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekið var eitt viðtal við fimm viðmælendur úr fyrirtækjunum. Þrjár rannsóknarspurningar voru settar fram. Þær eru eftirfarandi: Er ávinningur fyrir íslensk fyrirtæki að nýta sér aðferðafræði straumlínustjórnunar? Hvernig nýta fyrirtækin sér fræðin? Gæti hugmyndafræði straumlínustjórnunar nýst fyrir aðrar skipulagsheildir, þá hvaða? Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að allar skipulagsheildirnar telja að mikill ávinningur hafi hlotnast af innleiðingu straumlínustjórnunar. Mælingum er hins vegar ábótavant hjá skipulagsheildunum, þegar starfsánægja og ánægja viðskiptavina er skoðuð, og því ekki hægt að koma með réttmæta niðurstöðu einungis af huglægu mati viðmælenda. Skiplagsheildirnar nýta sér fræðin á mismunandi hátt. Í rannsókninni er sérstaklega skoðaðar fimm grundvallarreglur straumlínustjórnunar og hvernig fyrirtækin fara í gegnum þær reglur. Flest fyrirtækin fara ekki beint eftir bókinni og fóru engu að síður í gegnum öll skrefin. Ein skipulagsheildin fer nákvæmlega eftir reglunum. Skipulagsheildirnar eru að nýta sér verkfæri straumlínustjórnunar til að hjálpa sér að ná markmiðum. Öll eru þau að nota stöðumatsfundi þar sem öll markmið deildanna eru sýnileg. Allir viðmælendur rannsóknarinnar eru sammála um að hugmyndafræði straumlínustjórnunar nýtist fyrir allar skipulagsheildir, sama á hvaða starfsvettvangi eða af hvaða stærðargráðu. Það eina sem skiptir máli er að nýta þau verkfæri sem henta skipulagsheildinni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórdís Sif Arnarsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28341
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28341