Back to search

Bifröst University

Jákvæðar skyldur íslenska ríkisins samkvæmt mannréttindaákvæðum Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 með áherslu á 71. gr. Stjórnarskrárinnar og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu

Abstract

dc:description.abstract

Í lokaverkefni þessu verður leitast við að skýra frá þeim jákvæðu skyldum sem hvíla á íslenska ríkinu samkvæmt 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu og 71. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands. Í upphafi verður farið stuttlega yfir sögu mannréttinda og hugtakið mannréttindi. Skilgreint verður hvað felst í jákvæðum skyldum með því að rannsaka dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins en ekki er mælt fyrir um jákvæðar skyldur berum orðum í texta mannréttindasáttmálans, heldur hafa þær mótast í dómaframkvæmd Mannréttindadómstólsins. Meginmarkmið þessarar ritgerðar er því að rannsaka þessa dómaframkvæmd og draga af henni ályktanir um það hvaða jákvæðu skyldur felast í 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Má sjá í dómum Mannréttindadómstólsins að ríkin fá mismikið svigrúm til mats þegar kemur að jákvæðum skyldum, en horfir dómstóllinn þá einnig til meðalhófs og á það hve skilvirkt kerfi aðildarríkin hafa uppá að bjóða, en dómstóllinn hefur áréttað að réttindin sem mannréttindasáttmálanum er ætlað að vernda verði að vera raunhæf og virk. Inntak jákvæðra skylda ræðst því að meginstefnu til að eðli þeirra réttinda sem þeim er ætlað að vernda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórunn Unnur Birgisdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26832
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26832

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórunn Unnur Birgisdóttir 1981-. Jákvæðar skyldur íslenska ríkisins samkvæmt mannréttindaákvæðum Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 með áherslu á 71. gr. Stjórnarskrárinnar og 8. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26832