Bifröst University
Að breyttu breytanda : hver er ferill breytinga á hugbúnaði í Íslandsbanka og hvernig samræmist sá ferill almennum ferlum breytingastjórnunar?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að greina núverandi ferli breytinga í hugbúnaði í Íslandsbanka. Í upphafi var lögð fram eftirfarandi rannsóknarspurning: Hver er ferill breytinga á hugbúnaði í Íslandsbanka og hvernig samræmist sá ferill almennum ferlum breytingastjórnunar? Til að leita svara við þessari spurningu er fræðilegur grunnur breytingastjórnunar og stjórnunar rýndur með áherslu á tengingu þar á milli. Gerð var rannsókn á upplifun starfsmanna Íslandsbanka á breytingastjórnun í upplýsingatækni. Viðtöl voru tekin við starfsmenn sem tengdust breytingastjórnunarferlinu, þau þemagreind og rýnt í niðurstöður. Breytingastjórnun hugbúnaðar í Íslandsbanka hefur breyst mikið til batnaðar síðustu ár. Upp kom gagnrýni á það hverjir tækju ákvarðanir um breytingar og í ljós kom að fyrirtækjamenning innan Íslandsbanka yfirvinnur oft á tíðum breytingastjórnunarferilinn. Gagnrýni kom fram um að upplýsing milli allra aðila væri verulega ábótavant. Helsta niðurstaða þessarar rannsóknar er sú að í raun hefur innleiðing þess ferils sem er við lýði ekki tekist fullkomlega. Lykilorð: Breytingastjórnun, straumlínustjórnun, hugbúnaðarþróun, hugbúnaðardreifing, kerfisrekstur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bragi Þór Svavarsson 1971-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26826
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26826