Back to search

Bifröst University

Starfsmannamál, starfsánægja og starfsmannavelta : raundæmi kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er athafnatengd rannsókn sem vinnur að því að koma fram með tillögur til að auka starfsánægju og minnka starfsmannaveltu hjá hinu Íslenska Kalkþörungafélagi ehf. á Bíldudal. Í ritgerð þessari eru bornar saman fræðikenningar um málefnið, rannsóknir á gæðastjórnun og vaktavinnu skoðaðar og staða þessara mála skoðuð hjá þremur samanburðar fyrirtækjum auk kalkþörungafélagsins sjálfs. Niðurstöður skýrslunnar er að ýmislegt er hægt að gera til að ná settum markmiðum. Endurnýja þarf samkomulag og sálfræðilega samninginn við elstu starfsmenn félagsins og reyna að örva helgun þeirra í starfi svo að þeir dragi ekki úr og lágmarki helgun annarra starfsmanna. Bæta þarf samskiptaleiðir og tryggja að upplýsingar skili sér með markvissum hætti á milli starfsmanna. Byggja þarf undir og auka jákvætt viðhorf og hamingju á vinnustaðnum til að tryggja að gæðastjórnun skili sér í aukinni helgun starfsmanna. Leita þarf leiða til að breyta vaktakerfi þannig að neikvæð áhrif svefntruflana og matarræðis séu lágmörkuð og hvetja starfsmenn til að vera virkir í samfélaginu. Staðsetning fyrirtækissins og ýmis ytri ruðningsáhrif gera fyrirtækinu erfitt um vik að manna allar stöður á tilhlýðilegan máta og launaspenna er á atvinnusvæðinu. Því er mjög mikilvægt að fyrirtækið lagi og komi sem flestum innri málum í gott stand til að standa vel í samkeppninni um vinnuafl og stuðning samfélagsins. Í þessari ritgerð er bent á nokkrar leiðir sem gætu bætt stöðuna að þessu leiti.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhann Magnússon 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26823
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26823

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhann Magnússon 1969-. Starfsmannamál, starfsánægja og starfsmannavelta : raundæmi kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26823