Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð alþjóðlegra fjöldaframleiðslufyrirtækja í fataframleiðslu. Aukin notkun samfélagsmiðla og vaxandi upplýsingaflæði undanfarinna ára og áratuga hefur orðið til þess að almenningur er orðinn mun meðvitaðri um þann fjölþætta skaða sem framleiðslufyrirtæki hafa valdið og farinn að gera kröfur um gegnsæja og ábyrga viðskiptahætti. Með tilliti til þessa er markmið þessa verkefnis að fá innsýn í hvernig alþjóðleg fjöldaframleiðslufyrirtæki hafa brugðist við þessum kröfum og hvers vegna. Þær rannsóknarspurningar sem lagt var upp með eru: • Hvert er gildi þess að fyrirtæki setji skýrar stefnur um sjálfbæra þróun? • Hvernig birtist stefna stórra fyrirtækja í fjöldaframleiðslu hvað varðar sjálfbæra þróun? Til að nálgast efnið og svara rannsóknarspurningum voru annars vegar notuð fyrirliggjandi gögn í formi rannsókna, fjölmiðlaumfjöllunar, skýrslna og stefnumótunar Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og hins vegar voru stefnur og framleiðsluhættir fimm stórra alþjóðlegra fjöldaframleiðslufyrirtækja skoðaðir. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að alþjóðleg fjöldaframleiðslufyrirtæki séu undir miklum þrýstingi um að innleiða ábyrga viðskiptahætti. Kröfur almennings, þrýstingur stjórnvalda, alþjóðleg stefnumótun og lagasetningar hafa gert það að verkum að fyrirtæki sjá sig knúin til þess að bregðast við.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðfinna Oddsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26821
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26821