Back to search

Bifröst University

„...Og þá opnaðist þessi heimur“ : viðhorf níu hljóðfæraleikara til menntunar sinnar og starfa

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er leitast við að kanna viðhorf hljóðfæraleikara í klassískri tónlist til menntunar sinnar og atvinnu. Sérstaklega er sjónum beint að því hvort þær væntingar sem hljóðfæraleikarar hafa til starfa þegar þeir velja að gera hljóðfæraleik að atvinnu, reynist í samræmi við þann veruleika sem svo bíður á vinnumarkaði. Einnig er leitað eftir viðhorfum þeirra til framtíðar varðandi atvinnumál hljóðfæraleikara. Tekin voru viðtöl við níu hljóðfæraleikara í klassískri tónlist. Fjórar konur og fimm karlar svöruðu þremur megin spurningum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að það þarf mikla þjálfun frá bernsku til að verða atvinnuhljóðfæraleikari. Svo virðist sem hvatning og áhugi frá umhverfinu skipti miklu varðandi það hvernig börn heillast af tónlist. Kröfur eru gríðarlega miklar í greininni og allir þátttakendur sóttu sér langt framhaldsnám erlendis. Enginn þeirra valdi að gera tónlist að atvinnu vegna hugmynda um há laun eða atvinnuöryggi. Enginn þeirra taldi sig hafa orðið fyrir vonbrigðum í starfi þótt umhugsunarefnin séu mörg. Flestir þátttakendur höfðu leitt hugann að því kalli samtímans að með tilkomu tölvutækni og hnattvæðingar sé hlutverk hljóðfæraleikara að breytast. Þessi breyting varðar margs konar nýjar nálgunarleiðir og samþættingu listgreina og tónlistarstíla sem kallast nú á við það hlutverk hljóðfæraleikara að viðhalda þeim menningararfi sem við höfum þegið og að tónverkin, sem sum hver hafa lifað í aldir, verði aðgengileg komandi kynslóðum. Lykilorð: Hljóðfæraleikari, klassísk tónlist, habitus, kröfur, menningarauður.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Sigríður Birgisdóttir 1956-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26817
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26817

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Sigríður Birgisdóttir 1956-. „...Og þá opnaðist þessi heimur“ : viðhorf níu hljóðfæraleikara til menntunar sinnar og starfa. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26817