Back to search

Bifröst University

Málsmeðferð vegna frávísunar í einkamálum

Abstract

dc:description.abstract

Almenn einkamál eru rekin eftir ákvæðum laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Lögin byggja á samspili málsforræðis málsaðila yfir efnishlið máls og því hlutverki dómara að gæta að ófrávíkjanlegum réttarfarsreglum um formhlið þess sem takmarkar að ýmsu leyti málsforræði málsaðila. Gæti stefnandi ekki nægilega vel að því að málatilbúnaður hans sé í samræmi við þau skilyrði og takmarkanir sem lög og réttarvenjur kveða á um getur það orðið til þess að máli hans sé vísað frá dómi. Ritgerðin er lýsandi um meðferð frávísunarmála þar sem leitað er svara um grundvöll frávísunar út frá mismunandi hlutverkum málsaðila, með hvaða hætti dómari vísar máli frá dómi og hvaða málskotsheimildir gilda um frávísunarúrskurði. Rannsókn á framangreindum atriðum byggir að mestu á lögum, dómum og ritum fræðimanna, þar sem leitast er við að skýra hugtök og efni skilyrða. Í niðurstöðum ritgerðarinnar má finna, greiningu á nokkrum almennum og sérstökum réttarfarsskilyrðum sem takmarka málsforræði stefnanda, skýringar og efni þeirra skilyrða sem koma fram í ákvæðum 100. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og að lokum má finna niðurstöður og skýringar á mismunandi málskotsleiðum frávísunarmála.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andri Björgvin Arnþórsson 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26815
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26815

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andri Björgvin Arnþórsson 1981-. Málsmeðferð vegna frávísunar í einkamálum. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26815