Bifröst University
Ferðamennska á jaðarsvæðinu Fjallabyggð : með hvaða hætti má sveitarfélagið auka tekjur sínar af ferðaþjónustu?
Abstract
dc:description.abstractFerðaþjónustan er orðin stærsta atvinnugreinin á Íslandi og árið 2015 voru gjaldeyristekjurnar af greininni um 365 ma. króna, eða 31 % hlutfall af heildar gjaldeyristekjum ríkisins. Þrátt fyrir þessa þróun hafa sveitarfélögin ekki fengið tekjur í takti við fjölgun ferðamanna í landinu. Það gefur augaleið að fleiri ferðamenn þýðir aukið álag á vinsælum ferðamannastöðum og þegar ekki nást nægilega miklar tekjur af ferðamönnum til að nota við uppbyggingu á innviðum þá getur það haft neikvæð áhrif til lengri tíma litið. Nú þegar hafa forsvarsmenn sveitarfélaga haft orð á þessu og hafa miklar áhyggjur af stöðunni. Fjallabyggð er sveitarfélag sem ekki hefur farið varhluta af auknum ferðamannastraumi síðustu árin, 400% aukningu á fjölda gistinátta á árunum 2012-2015 er staðfesting á því. Svæðið býður uppá mikla möguleika, þá sér í lagi hvað varðar ævintýraferðamennsku, og í verkefninu er farið yfir hvernig hægt sé að stuðla að áframhaldandi vexti. Nokkrir þættir eru skoðaðir sérstaklega með hjálp SVÓT greiningar, meðal annars komur skemmtiferðaskipa, viðburðir og afþreying á svæðinu. Að auki er litið til Norður Noregs og reynt að draga lærdóm af þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í þar með mjög góðum árangri. Möguleikar fyrir gjaldtöku eru svo metnir og þá sér í lagi gistináttaskattur og komugjöld. Farið er yfir hvor kosturinn þykir vænlegri fyrir Fjallabyggð miðað við mögulega tekjuaukningu. Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að fara yfir stöðu jaðarsvæðisins Fjallabyggðar í ferðamálum og hvernig megi auka tekjur sveitarfélagsins af atvinnugreininni til að geta byggt upp innviði. Með í huga að geta tekið á móti fleiri ferðamönnum í framtíðinni og boðið þeim uppá sem bestar aðstæður og þar af leiðandi stuðla að jákvæðri upplifun þeirra af áfangastaðnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sævar Birgisson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26793
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26793