Back to search

Bifröst University

Samkvæmisdans : list eða íþrótt? Eigindleg rannsókn sem skoðar dans í tilvistarkreppu

Abstract

dc:description.abstract

Er samkvæmisdans list eða íþrótt? Í þessari rannsókn er leitað svara við þessari spurningu með því að skoða nánar viðhorf dansaranna sjálfra og sögulegan bakgrunn dansins. Þróun samkvæmisdansins er sérstaklega veitt athygli og hún skoðuð í því ljósi sem dansinn er í dag þar sem tvær ólíkar stefnur hafa myndast; ein sem togar samkvæmisdansinn nær rótum sínum og á sama tíma nær hinu listræna og hin stefnan vill komast nær Ólympíuleikunum og íþróttaheimum. Nálgast er á fræðilegan máta ýmsar kenningar um listir og hvað skilgreinir listamanninn. Markmiðið er að varpa nýju ljósi á samkvæmisdansinn og hugsanlega koma auga á nýjar leiðir sem færir samkvæmisdönsurum ferska sýn og opnar umræðuna milli listheima og íþróttaheima. Aðferðirnar sem notaðar eru við öflun gagna felast í eigindlegum opnum viðtölum, við bæði samkvæmisdansara og listdansara, sem studd voru með vettvangsathugun rannsakanda. Engin endanleg svör gáfust fyrir utan þau sem gefa af sér frekari spurningar. Viðmælendur staðfesta í raun réttmæti aðalrannsóknarspurningarinnar þar sem full ástæða er að skoða samkvæmisdansinn bæði sem list og íþrótt. Gert er grein fyrir því að niðurstöður þessar bendi til þess að þörf sé á frekari rannsóknum með stærri hóp þátttakenda til þess að skoða listir og íþróttir og hvernig þessir tveir heimar eru skilgreindir í samfélaginu. Ritgerð þessi er upphafið af áhugaverðu rannsóknarefni sem hægt er að þróa á ólíkan máta og gert er grein fyrir í umræðukafla í lok ritgerðarinnar. Lykilorð: Samkvæmisdans, listdans, ballett, viðhorf, listir, íþróttir, listaskilgreining, sjálfsmynd, viðtökufræði

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Friðrik Agni Árnason 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26781
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26781

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Friðrik Agni Árnason 1987-. Samkvæmisdans : list eða íþrótt? Eigindleg rannsókn sem skoðar dans í tilvistarkreppu. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26781