Abstract
dc:description.abstractÞetta er rannsókn á störfum starfsmanna- og mannauðsstjóra á Íslandi, þeim ferlum sem einkenna þeirra störf og því hvort einhver munur sé á milli starfsheita. Markmiðið með rannsókninni var að greina hvort starfstitill stjórnanda starfsmanna segi til um hvers konar stjórnandi viðkomandi er og hvort enn sé ástunduð hin taktíska starfsmannstjórnun eða hvort stjórnunarstíllinn hefur þróast samhliða þeirri þróun sem orðið hefur yfir í það sem þekkist í dag sem mannauðsstjórnun. Lögð var fram rannsóknarspurningin: Eru mannauðsstjórar á Íslandi að beita stefnumiðaðri mannauðsstjórnun eða eingöngu starfsmannastjórnun undir nýju nafni? Stuðst var við eigindlega aðferðafræði í formi hálf opinna viðtala við stjórnendur á þessu sviði en einnig voru skoðaðar kenningar ýmissa fræðimanna á þessu sviði auk rannsóknar sem unnin hefur verið á vegum Háskólans í Reykjavík á þriggja ára frasti frá árinu 2003. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þó vissulega vanti upp á nokkra þætti þá hafa stjórnendur starfsmanna færst mikið í átt að því að meta starfsfólk sitt sem mannauð og fara með mál starfsmanna í takt við það. Mikil áhersla virðist lögð á að stefna í starfsmannamálum fylgi heildarstefnu fyrirtækisins og líðan starfsmanna á vinnustaðnum er farin að skipta æ meira máli. Titill stjórnenda starfsmanna virðist litlu máli skipta þegar heildarmyndin er skoðuð og er það frekar sá karakter sem stjórnandinn hefur að geyma sem skiptir öllu máli þegar kemur að mannauðsmálum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Guðrún Kristinsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26180
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26180