Back to search

Bifröst University

Samfélagslega ábyrgð olíufyrirtækja á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að skoða samfélagslega ábyrgð þriggja stærstu olíufyrirtækja á Íslandi. Hvort þau þekki til hugtaksins, hvort þau séu að vinna að verkefnum er falla undir samfélagslega ábyrgð, hver hafi verið hvatinn að mótun samfélagslegrar ábyrgðar innan þeirra, hvaða viðmið og stöðlum þau fylgja, hver sé staðan í dag og hver framtíðarsýn þeirra er. Til að varpa ljósi á hvað ofangreind fyrirtæki eru að gera sem telst til samfélagslegrar ábyrgðar eru settar fram rannsóknarspurningarnar: Eru olíufélögin á Íslandi samfélagslega ábyrg? hvaða stefnu hafa þau sett sér og þá eftir hvað stöðlum vinna þau? Jafnframt er rannsakað, hver sé helsti hvati þess að farið var að vinna að samfélagslegri ábyrgð? Með rannsókninni er ætlunin að auka fjölbreytni á þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið á samfélagslegri ábyrgð í von um að hún veki athygli á mikilvægi þátttöku íslenskra fyrirtækja í öllum starfsgreinum. Ennfremur að skoða þurfi jafnvel hverja atvinnugrein fyrir sig þar sem áherslur og starfsemi fyrirtækja er ólík. Einnig er tilgangurinn að vekja athygli á að fyrirtæki geti tileinkað sér þessa hugmyndafræði og skipti ekki máli hvers eðlis starfssemin sé. Þá er átt við að jafn áberandi fyrirtæki á íslenskum markaði og olíufyrirtæki eru, geti tekið þátt í að efla samfélagslega ábyrgð og draga úr þeim áhrifum sem rekstur þeirra mögulega hefur, bæði á umhverfið og um leið á samfélagið. Til að komast að niðurstöðu var tekið viðtal við einn starfsmann frá hverju fyrirtæki, Orkustofnun og Festu – miðstöð um samfélagslega ábyrgð og niðurstöður túlkaðar út frá helstu kenningum um samfélagslega ábyrgð. Lykilorð: Samfélagsleg ábyrgð, SÁF, eldsneyti, olíufélög, umhverfivernd, verðsamanburður, viðskiptasiðferði

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Melkorka Sigurðardóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25165
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25165

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Melkorka Sigurðardóttir 1969-. Samfélagslega ábyrgð olíufyrirtækja á Íslandi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25165