Back to search

Bifröst University

Eru tryggðarkerfi íslensku olíufélaganna tryggðarhvetjandi fyrir notendur þeirra?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni ritgerðarinnar var að kanna viðhorf viðskiptavina íslensku olíufélaganna til tryggðarkerfa þeirra. Hvort viðskiptavinir telji tryggðarkerfin stuðli að tryggð þeirra við olíufyrirtækin. Rannsóknin var megindleg í formi spurningakönnunar og var spurningalistinn settur upp með það fyrir augum að athuga viðhorf, notkun og tryggð þátttakenda við fyrirtækin. Spurningalistinn var sendur út rafrænt í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og svöruðu alls 240 þátttakendur allri könnuninni. Helstu niðurstöður voru þær að tryggð þátttakenda reyndist töluverð gagnvart olíufélögunum sem aðallega endurspeglast í hegðunartryggð þeirra. Tryggðin einskorðast því að mestum þunga gagnvart tryggðarkerfinu sjálfu og þeim fríðindum sem þar bjóðast fremur en gagnvart olíufélögunum sjálfum. Markmið tryggðarkerfa er að auka á tryggð viðskiptavina sinna gagnvart fyrirtækinu og styðja niðurstöður þessarar rannsóknar að tryggðarkerfi geta verið farsæl leið til þess. Hins vegar sýna niðurstöður að hugræn tryggð þátttakenda er ekki mikil þar sem vel flestir þátttakenda myndu færa viðskipti sín til samkeppnisaðila byðust þar betri tryggðarkjör. Það gæti því verið umhugsunarefni fyrir olíufélögin hvort tryggðarkerfin í núverandi mynd séu nægjanlega vel útfærð til þess að skila þeim sem mestum ávinningi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lilja Björg Eiríksdóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25157
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25157

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lilja Björg Eiríksdóttir 1980-. Eru tryggðarkerfi íslensku olíufélaganna tryggðarhvetjandi fyrir notendur þeirra?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25157