Back to search

Bifröst University

Stafræn markaðssetning fyrir Samskip : hvernig geta Samskip nýtt sér kosti stafrænnar markaðssetningar?

Abstract

dc:description.abstract

Í upplýsinga- og tæknivæddu samfélagi sem við lifum í dag, verður krafan á fyrirtæki æ meiri til að gera samskipti sín við viðskiptavini eins hnökralaus og einföld og mögulegt er. Á sama tíma fær rödd neytenda meira vægi með tilkomu samfélagsmiðla og þurfa fyrirtæki að ákveða hvar, hvenær, hverjum og hvernig þau ætla að birtast út í hinum stafræna heimi. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að meta núverandi stöðu Samskipa með tilliti til stafrænna þátta og meta með hvaða hætti Samskip geta nýtt sér kosti stafrænnar markaðssetningar. Í fyrri hluta þessarar ritgerðar er farið yfir þá fræðilegu þætti sem snúa að stafrænni markaðssetningu og helstu hugtök. Í síðari hluta ritgerðarinnar eru samfélagsmiðlar skoðaðir með tilliti til fyrirtækjamarkaðar ásamt greiningu á stafrænu umhverfi Samskipa. Framkvæmdar eru stafrænar greiningar með aðstoð viðurkenndra módela stafrænnar markaðsfræði til að ná fram skýrari mynd á hvaða tækifæri eru til staðar fyrir Samskip. Jafnframt er skoðuð rannsókn Cerasis, fyrirækis á flutningamarkaði í Bandaríkjunum sem gaf áhugaverðar niðurstöður og markmiðasetning þeirra metin og tengd stafrænum fræðum. Niðurstöður greiningarvinnunnar leiddu í ljós að tækifæri eru til staðar fyrir Samskip og möguleikar fyrir fyrirtækið að nýta sér enn frekar kosti stafrænnar markaðssetningar til frekari vaxtar á markaði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Óskar Jensson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25148
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25148

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Óskar Jensson 1974-. Stafræn markaðssetning fyrir Samskip : hvernig geta Samskip nýtt sér kosti stafrænnar markaðssetningar?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25148