Back to search

Bifröst University

„Við höfum bara ekki haft tíma í það...“ : um innleiðingu safnalaga og hlutverk safnstjóra

Abstract

dc:description.abstract

Mikilvægur áfangi náðist í sögu íslenskra safna með tilkomu safnalaganna nr. 141/2011. Þá gátu söfn sótt um viðurkenningu frá mennta – og menningarmálaráðherra að undangenginni tillögu safnaráðs. Söfnin sem hlotið hafa viðurkenningu eru 45 talsins og eru þau staðsett víðsvegar um landið. Þetta eru listasöfn, menningarminjasöfn, náttúruminjasöfn og söfn með blandaða starfsemi. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvernig safnstjórum viðurkenndra safna á Íslandi hefur tekist að sinna því hlutverki sem þeim er ætlað í lögum. Sjónum var beint að safnstjórum sem bera ábyrgð á rekstri safna og að þau starfi í anda safnalaganna. Hlutverk stjórnenda safna var skoðað og ljósi varpað á fræðilegar heimildir um safnastjórnun og hvernig starfið birtist í raunveruleikanum. Stjórnendur safna eins og aðrir stjórnendur eru stöðugt að bregðast við áreiti og eiga í margvíslegum samskiptum við gesti, eigendur safna og aðra hagsmunaaðila. Þeir sópa líka gólf, skipta um ljósaperur, setja upp sýningar og moka snjó. Flest viðurkennd söfn á Íslandi eru lítil þar sem stöðugildi á ársgrundvelli eru frá hálfu upp í fimm. Rannsókn þessi byggir á blandaðri aðferð, þar sem notaðar voru bæði megindlegar og eigindlegar aðferðir við gagnaöflun og úrvinnslu. Tekin voru þrjú viðtöl og sendur út spurningalisti til safnstjóra viðurkenndra safna. Rannsakandi starfar sjálfur sem safnstjóri og hefur því persónulegan áhuga á viðfangsefni rannsóknarinnar. Helstu niðurstöður voru þær að þeir safnstjórar sem tóku þátt í rannsókninni telja að það gangi vel að innleiða safnalögin og að þau séu til bóta. Lögin eru rammi um gæði og aukna fagmennsku í safnastarfi. Aftur á móti skortir fé til rekstursins og mannauð til að sinna þeim verkefnum sem lögin kveða á um. Safnalögin eru sett af Alþingi en sveitarfélögin sem í flestum tilvikum eru eigendur safna móta stefnu og útdeila fé til safnastarfsins. Starfsumhverfið er því síbreytilegt vegna mismunandi áherslna eigenda safna og ekki á vísan að róa með fjármagn til rekstursins. Lykilorð: [Safn, safnalög, viðurkennt safn, safnstjóri, menningarstjórnun]

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðný Dóra Gestsdóttir 1961-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25140
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25140

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðný Dóra Gestsdóttir 1961-. „Við höfum bara ekki haft tíma í það...“ : um innleiðingu safnalaga og hlutverk safnstjóra. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25140