Back to search

Bifröst University

Upplýst samfélag : opinber umræða, háskólafólk og fjölmiðlar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um hvað þurfi að vera til staðar í lýðræðissamfélögum til þess að borgarar þeirra geti tekið þátt í opinberri umræðu. Fjallað er um mikilvægi opinberrar umræðu fyrir lýðræðið og rætt um hvaða hlutverki háskólafólk og fjölmiðlar eiga að gegna í opinberri umræðu en niðurstaða rannsóknar er að þessir hópar séu mikilvægir fyrir virkt lýðræðissamfélag. Skoðað er hvernig og hvers vegna fjölmiðlum og háskólafólki mistókst að halda opinberri umræðu upplýstri í aðdraganda íslenska efnahagshrunins árið 2008. Áhrif hagsmunaafla á opinbera umræðu eru krufin til mergjar og greint frá dæmum um tilraunir hagsmunahópa til að hafa áhrif á fjölmiðla og háskólafólk, bæði fyrir og eftir hrun. Ljóst er að í íslensku samfélagi eru til öfl sem reyna að vængstífa upplýsta opinbera umræðu. Færð eru rök fyrir því að uppgjörinu við hið íslenska efnahagshrun sé ekki lokið og því ljúki ekki fyrr en tekist er á við þá staðreynd. Aðeins þannig er hægt að styrkja umhverfi fjölmiðla- og háskólafólks sem eru nauðsynlegar stéttir í öllum virkum lýðræðissamfélögum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gauti Skúlason 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25138
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25138

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gauti Skúlason 1993-. Upplýst samfélag : opinber umræða, háskólafólk og fjölmiðlar. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25138