Back to search

Bifröst University

Einkaréttur höfunda samkvæmt ákvæðum höfundalaga nr. 73/1972 : staða einkaréttar höfunda með hliðsjón af tækniþróun

Abstract

dc:description.abstract

Umfjöllunarefni þessarar ritgerðar er á sviði höfundaréttar og fjallar um þann einkarétt sem höfundum bókmennta- og listverka er veittur samkvæmt ákvæðum höfundalaga nr. 73/1972. Í ljósi þess hversu mikilvægt það er höfundi að vel takist til við að koma verki hans til vitundar annarra, er honum veittur einkaréttur til þeirra athafna og aðferða sem hann kýs til þess. Af þessum sökum er einkarétturinn hin eiginlegi kjarni höfundaréttar. Í umfjöllun ritgerðar þessarar er lögð megináhersla á að skýra og fjalla um þær einkaréttarlegu heimildir sem höfundum eru veittar. Í því sambandi er leitast við að sýna fram á hvers eðlis og hvers víðtækur þessir réttur er. Þá er fjalla um þær kröfur sem gerðar eru til verka svo þau njóti verndar lagana og viðkið að þeim takmörkunum sem gerðar eru á einkaréttinum. Þróun í miðlun upplýsinga og efnis í gegnum Internetið síðustu áratugi hefur haft veruleg áhrif á þá réttarvernd sem lögum á sviðið höfundaréttar er ætlað að veita höfundum hugverka. Gætir áhrifa þessarar þróunar mest hvað varðar einkarétt höfunda til birtingar og eintakagerðar. Athugun þessarar ritgerðar snýr að því að skoða hvernig íslensku höfundalögin hafa staðið gagnvart þessari þróun. Í því sambandi er fjallað um þær breytingar sem gerðar hafa verið á lögunum og þá sérstaklega horft til þeirra breytinga sem innleiðingar Evróputilskipanna á sviði höfundaréttar hafa haft á íslenskan rétt. Að lokum er vikið að þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í tengslum við heildarendurskoðunar höfundalaga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Böðvar Sigurbjörnsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25133
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25133

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Böðvar Sigurbjörnsson 1982-. Einkaréttur höfunda samkvæmt ákvæðum höfundalaga nr. 73/1972 : staða einkaréttar höfunda með hliðsjón af tækniþróun. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25133