Bifröst University
Samdráttur í erlendum fréttaflutningi : ástæður, afleiðingar og birtingarmyndir
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð verður leitast við að svara því hvort samdráttur í erlendum fréttaflutningi hafi átt sér stað á seinustu áratugum, hvernig samdrátturinn birtist, hvaða ástæður liggja þar að baki og hvaða afleiðingar það hefur haft og/eða mun hafa. Í upphafi verður fjallað um sögu, bakgrunn og mikilvægi erlends fréttaflutnings sem og þá þætti sem helst hafa áhrif á hvað birtist okkur í fréttum. Þá verður farið yfir þær breytingar sem hafa orðið á fjölmiðlun með tilkomu internetsins. Næst verður fjallað um þann samdrátt sem orðið hefur í erlendum fréttaflutningi seinustu áratugi, erlendis og hér á landi. Því næst verður farið í þær ástæður sem liggja að baki samdrættinum, og greint frá því hvernig samspil tækniþróunar og breytinga á viðskiptaumhverfi hefur gert það að verkum að fjölmiðlar hafa dregið úr erlendum fréttaflutningi og fjalla í auknum mæli um aðra fréttaflokka. Þá verður farið yfir þá undirliggjandi hagfræðilegu þætti sem útskýra af hverju viðskiptum með fréttir er háttað eins og raun ber vitni. Helstu niðurstöður eru þær að samdráttur hefur orðið í erlendum fréttaflutningi á heimsvísu og orsakast hann af margþættum breytingum sem orðið hafa á markaðsumhverfi fjölmiðla með tilkomu internetsins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Auður Alfa Ólafsdóttir 1989-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/25127
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/25127