Back to search

Bifröst University

Upplýsingaskylda seljanda og aðgæsluskylda kaupanda með tilliti til laga nr. 40/2002 um fasteignakaup

Abstract

dc:description.abstract

Markmið ritgerðarinnar er að gera grein fyrir upplýsingaskyldu seljanda og hvaða afleiðingar verða þegar seljandi vanrækir skyldu sína. Jafnframt verður gerð grein fyrir aðgæsluskyldu kaupanda og hvaða þýðingu það hefur fyrir kaupanda ef hann fullnægir ekki skyldunni. Niðurstaðan í þessari ritgerð er að seljandi á að upplýsa kaupanda um öll þau atriði sem geta haft áhrif á gerð eða efni kaupsamnings. Upplýsingaskylda seljanda er rík og skortur á upplýsingum eða upplýsingum sem beinlínis eru rangar hafa verulega þýðingu við gerð og efni kaupsamnings. Á kaupanda hvíla einnig ríkar skyldur þar sem hann þarf að uppfylla aðgæsluskyldu. Samkvæmt því ber honum að skoða fasteign áður en kaupsamningur er gerður en þó er ekkert ákvæði sem kveður á um fortakslausa skoðun fyrir kaup. Ef kaupandi skoðar ekki fasteign áður en kaupsamningur er gerður hefur hann fyrirgert sér þeim rétti að beita vanefndaúrræðum laganna. Skyldur aðila eru taldar veigamiklar í réttarframkvæmd og það eigi að horfa reglunar sjálfstætt þar sem hvor aðili um sig á að fullnægja þessum skyldum. Í eldri dómaframkvæmd var kaupandinn látinn bera hallann en fasteignakaupalögin lögfestu að upplýsingaskyldan skyldi ganga aðgæsluskyldunni framar sbr. 3. mgr. 29. gr. fkpl. Markmiðið var að breyta áralangri dómaframkvæmd sem dómstólar hafa mótað. Þrátt fyrir lagasetningu héldu dómstólar sig við eldri fordæmi þar til árið 2013 þegar Hæstiréttur komst loksins að niðurstöðu sem telst í samræmi við núgildandi lög þegar hann dæmdi skv. 3. mgr. 29. gr.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásgeir Þór Ásgeirsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/25124
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/25124

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásgeir Þór Ásgeirsson 1991-. Upplýsingaskylda seljanda og aðgæsluskylda kaupanda með tilliti til laga nr. 40/2002 um fasteignakaup. 2016. http://hdl.handle.net/1946/25124