Bifröst University
Starfsánægja í nýsameinaðri heilbrigðisstofnun : hvar stendur hún í samanburði við aðrar heilbrigðisstofnanir?
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar ritgerðar er að leggja mat á starfsánægju í nýsameinaðri heilbrigðisstofnun. Stofnunin sem varð fyrir valinu er Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) sem sameinuð var 1. október 2014. Mikið hefur verið ritað og rætt um sameiningu í heilbrigðisþjónustu og ekki allir á einu máli. Flestar umfjallanir voru neikvæðar og heimamenn almennt á móti sameiningum en úttektaraðilar og álitsgjafar ríkisins fylgjandi þeim. Það sama má segja um aðrar sameiningar á ríkisstofnunum eða flutning þeirra líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum þá er hún almennt neikvæð. Í fyrri hluta ritgerðarinnar er farið yfir hvað starfsánægja er og af hverju hún er mæld, hverjar eru skyldur, kröfur, lög og viðmið að góðum starfsháttum ríkisstarfsmanna. Eins stjórnun ríkisstarfsmanna og hlutverk stjórnenda í heilbrigðisþjónustu. Í seinni hluta ritgerðarinnar er farið yfir tölfræði og niðurstöður könnunarinnar. Spurningakönnunin var fengin að láni frá Gallup og SFR. Gerður var samanburður við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni og stuðst við kannanir „Stofnun ársins“ til að leggja mat á það hvar stofnunin stæði í samanburði við aðra heilbrigðisstofnanir. Skoðaðar voru einnig fyrri rannsóknir. Niðurstöðurnar leiddu óvænt í ljós að starfsánægja starfsfólks HSN er meiri en í öðrum stofnunum þrátt fyrir að aðeins tæpt ár var frá sameiningu. Vöknuðu margar spurningar hvað veldur þeirri niðurstöðu en vísbendingar má finna í svörum í könnuninni. Lykilorð: Starfsánægja, heilbrigðisstofnun, spurningarkönnun, trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar og ánægja og stolt
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Þórhallur Harðarson 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23771
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23771