Back to search

Bifröst University

Breytt til batnaðar : innleiðing straumlínustjórnunar hjá Nóa Síríusi

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvernig innleiðing straumlínustjórnunar hefur gengið fyrir sig hjá Nóa Síríusi h.f. Rannsakað er hvort árangur hafi náðst í þremur þáttum sem voru meðal þess sem horft var til að væri hægt að bæta með aðferðum straumlínustjórnunar þegar ákveðið var að hefja innleiðinguna árið 2010. Þessir þættir eru: vörugæði, starfsánægja og flæði. Rannsóknin er tilviksrannsókn sem framkvæmd var með eigindlegum rannsóknaraðferðum í formi viðtala við bæði stjórnendur og almenna starfsmenn hjá fyrirtækinu. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að marktæk breyting hefur orðið á tveimur þáttum, starfsánægju og flæði en rannsóknin leiðir hins vegar ekki ljós að vörugæði hafi aukist eftir að fyrirtækið hóf innleiðingu straumlínustjórnunar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að helstu hindranir í veginum á innleiðingu straumlínustjórnunar hjá Nóa Síríusi hafa einkum snúið að eftirfarandi þáttum: • Þjálfun og þekkingu starfsfólks. • Skuldbindingu allra stjórnenda við innleiðinguna og þekkingu þeirra á aðferðafræði straumlínustjórnunar. • Upplýsingaflæði innan fyrirtækisins. Þess er vænst að niðurstöður rannsóknarinnar geti að einhverju leyti gagnast íslenskum framleiðslufyrirtækjum sem eru að innleiða straumlínustjórnun í starfsemi sína eða hyggjast gera það í framtíðinni. Niðurstöðurnar geta hugsanlega einnig nýst annars konar fyrirtækjum og stofnunum þar sem ýmsir þættir sem fram koma í niðurstöðunum geta átt við varðandi innleiðingu straumlínustjórnunar hjá hvers kyns skipulagsheildum. Lykilorð: Straumlínustjórnun, framleiðslufyrirtæki, vörugæði, flæði, starfsánægja.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Magnús Bollason 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23766
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23766

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Magnús Bollason 1969-. Breytt til batnaðar : innleiðing straumlínustjórnunar hjá Nóa Síríusi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23766