Abstract
dc:description.abstractVerkefnið fjallar um rannsókn sem gerð var um móttöku og þjálfun nýliða í ofngæslu hjá Elkem Ísland. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig fyrirtækið stæði að þessum þáttum út frá fræðunum og öðrum rannsóknum hvað þetta varðar. Spurningakönnun var lögð fyrir starfsmennina og henni skipt í þrjá þætti: Fyrst var spurt um móttöku starfsmanns, næst var spurt um þjálfunarferlið og síðast um afleiðingar móttöku og þjálfunar á starfsgetu og líðan í starfi. Rannsóknarspurningin var eftirfarandi: Hvernig er staðið að móttöku og þjálfun ofngæslumanna hjá Elkem Ísland? Við gerð rannsóknarinnar var notast við eigindlega aðferð í formi viðtala við tvo stjórnendur en til stuðnings var notast við megindlega aðferð í formi spurningakönnunar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fyrirtækið starfar eftir fræðum mannauðsstjórnunar hvað varðar móttöku og þjálfun. Meirihluti þátttakenda var ánægður með ferlið og þá sem að því komu. Ánægjan var mest hjá þeim sem töldu þjálfunarferlið vera vel skipulagt. Þá gáfu niðurstöður vísbendingu um að starfsmenn vilji hafa aðeins einn aðila sem sjái um þjálfun nýliða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Guðmundsdóttir 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23760
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23760