Back to search

Bifröst University

Verður gjaldkeri framtíðarinnar farsími? Farsímabankaþjónsta einstaklinga á Íslandi skoðuð

Abstract

dc:description.abstract

Með tækniframförum síðustu ára hefur hegðun hins almenna neytanda gjörbreyst. Fartölvur, snjallsímar og spjaldtölvur eru til á hverju heimili og með þeim hefur aðgengi að upplýsingum, verslunum og heiminum öllum í rauninni, orðið mun auðveldara. Neytandinn hefur aðgang að hvers kyns þjónustu allan sólarhringinn og þarf ekki að fara út úr húsi til að sinna hinum ýmsu erindum. Tilgangur þessa verkefnis er að sjá hver stefna bankanna er með farsímabankaþjónustu. Er hún eitthvað sem leggja á áherslu á í þjónustu bankanna í nánustu framtíð eða er þetta einungis viðbótarþjónusta sem bankarnir bjóða upp á í sambland við almenna bankaþjónustu í útibúum. Höfundur rannsóknarinnar hefur starfað sem fastráðinn- og sumarstarfsmaður hjá Íslandsbanka með hléum frá árinu 2004. Síðastliðið sumar starfaði hann sem sumarstarfsmaður í útibúi bankans á Akureyri. Þar tók hann þátt í átaki varðandi app Íslandsbanka þar sem lögð var áhersla á að kynna appið fyrir viðskiptavinum og aðstoða við uppsetningu á því ásamt kennslu fyrir viðskiptavini bankans. Það sem vakti áhuga höfundar var hvað allir viðskiptavinir bankans tóku vel í þessa þróun, og hvað margir viðskiptavinir höfðu nú þegar sótt appið og notað það. Helstu niðurstöður gefa til kynna að framtíð bankaviðskipta einstaklinga liggi í farsímabankaþjónustu og er þá aðallega átt við minni háttar afgreiðslur eins og að taka út pening, millifæra, greiða reikninga og þess háttar. Bankarnir þrír, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, fylgjast náið með þróun mála erlendis og hafa þegar hafið vinnu við að hagræða og einfalda rekstur í framlínu bankanna. Leggja á áherslu á ráðgjöf til viðskiptavina varðandi stærri mál en beina minni afgreiðslum á sjálfsafgreiðslustöðvar, þar spila öpp og farsímabankar stór hlutverk. Þetta er verkefni sem bankarnir halda áfram að vinna að og eru enn lausnir sem þarf að finna varðandi ýmis mál áður en alfarið verður hægt að skipta yfir í þessa þjónustu. Niðurstaða höfundar er því sú að farsímabankaþjónusta sé framtíð bankaviðskipta einstaklinga á Íslandi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sólveig Hallsteinsdóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23755
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23755

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sólveig Hallsteinsdóttir 1984-. Verður gjaldkeri framtíðarinnar farsími? Farsímabankaþjónsta einstaklinga á Íslandi skoðuð. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23755