Back to search

Bifröst University

Dagsferðir höfuðborgarbúa : hvernig stendur Akranes sem áfangastaður fyrir dagsferðir höfuðborgarbúa?

Abstract

dc:description.abstract

Megintilgangur þessarar rannsóknar var að finna út hvort höfuðborgarbúar væru að fara í dagsferðir út fyrir höfuðborgarsvæðið og hverju þeir væru helst að leita eftir í dagsferðum. Sendur var út spurningalisti til höfuðborgarbúa á rafrænu formi á Facebook og voru þeir spurðir hvort þeir hefðu farið í dagsferð og þá á ákveðna áfangastaði og hverskonar afþreyingu þeir leituðu helst eftir. Einnig var haft samband við starfsmenn markaðsstofa þeirra þriggja landshluta sem næstir eru höfuðborgarsvæðinu með símtali og leyfi fengið til að senda þeim spurningalista. Þar var spurt hvað þeirra svæði hafi helst upp á að bjóða og hvaða veikleika og styrkleika tvö bæjarfélög á hverju svæði hefðu. Áfangastaðirnir sem um var spurt voru því sex og voru þeir greindir út frá spurningalistanum varðandi afþreyingu og svo bornir saman. Sérstaklega var horft á Akranes sem áfangastað og staða hans borin saman við stöðu hinna bæjarfélaganna varðandi þá þjónustu sem þar er að finna og í kjölfarið var meðal annars sett upp SVÓT greining á Akranesi sem ferðamannabæ. Í ljós kom að Akranes hefur upp á flest allt að bjóða sem þátttakendur leituðu helst eftir, því þarf að skoða hvað það er sem Akranes vantar til þess að fleiri vilji heimsækja bæjarfélagið. Þá var settur saman pistill um tillögur að úrbótum fyrir Akranes til að fá gesti frekar til sín.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Þorsteinsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23753
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23753

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Þorsteinsdóttir 1983-. Dagsferðir höfuðborgarbúa : hvernig stendur Akranes sem áfangastaður fyrir dagsferðir höfuðborgarbúa?. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23753