Back to search

Bifröst University

Ráðningarferli í alþjóðlegu umhverfi

Abstract

dc:description.abstract

Ráðningar og ráðningarferli eru viðfangsefni sem allar skipulagsheildir í flestum atvinnugreinum þurfa að kljást við. Ráðningarferli geta bæði verið tímafrek og kostnaðarsöm fyrir skipulagsheildir og þurfa þær því að vanda vel til verka til að ná fram árangursríkri og endanlegri ráðningu. Viðfangsefni ritgerðarinnar og meginmarkmið hennar er að ná fram sýn mannauðsstjóra og stjórnenda Amazon hvað varðar mannauðsmál og ráðningarferli innan skipulagsheildarinnar og þannig komast að því hvort umfangsmikil ráðningarferli skili Amazon hæfara starfsfólki. Í ritgerðinni er varpað ljósi á hvaða áhrif flókin og umfangsmikil ráðningarferli hafa á starfsmannaval og gæði starfsmanna Amazon. Við framkvæmd rannsóknarinnar var ákveðið vegna takmarkana að nýta eigindlegar rannsóknaraðferðir. Þátttakendur í rannsókninni voru tíu starfsmenn Amazon sem allir hafa yfir fimm ára starfsreynslu innan skipulagsheildarinnar ásamt því að vera með reynslu og þekkingu á mannauðsmálum og ráðningarferli Amazon. Djúpviðtöl voru tekin við alla þátttakendur. Í kafla níu eru niðurstöður úr viðtölum sem tekin voru við starfsmenn Amazon. Kaflaheitin bera nafn af þeim fjórum meginþemum sem dregin voru saman við úrvinnslu gagna og verður vitnað beint í viðmælendur í umfjöllunni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að umfangsmikil ráðningarferli séu að skila skipulagsheild eins og Amazon hæfara starfsfólki og langtíma ráðningu. Hjá skipulagsheildinni starfa 154.100 starfsmenn í 257 deildum og í 32 löndum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kolbrún Ýr Jónsdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/23737
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/23737

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbrún Ýr Jónsdóttir 1976-. Ráðningarferli í alþjóðlegu umhverfi. 2016. http://hdl.handle.net/1946/23737