Bifröst University
Koma tímar koma ráð : hugmyndir um framtíðarhlutverk félagsheimilanna í Húnaþingi vestra
Abstract
dc:description.abstract„Koma tímar koma ráð: Hugmyndir um framtíðarhlutverk félagsheimilanna í Húnaþingi vestra“ er rannsóknarverkefni sem snýst um að safna hugmyndum og skoða möguleika varðandi notkun á félagsheimilunum í Húnaþingi vestra. Tilgangur rannsóknarinnar er að draga fram hugmyndir sem stuðla að betri nýtingu og/eða breyttu hlutverki félagsheimilanna. Rannsóknarspurningarnar eru tvær. Í fyrsta lagi: hvernig er hægt að nýta félagsheimilin í Húnaþingi vestra betur og hvert er mögulegt framtíðarhlutverk þeirra? Í öðru lagi: er nauðsynlegt að endurhanna tilgang félagsheimilanna í Húnaþingi vestra í ljósi breyttra tíma? Rannsóknaraðferðin sem var höfð að leiðarljósi við gerð þessa verkefnis er afsprengi eigindlegra rannsóknaraðferða félagsvísinda og ákveðinna eiginleika listrænna starfshátta (e. artistic practice), í rannsóknarferlinu er fléttað saman ritgerð og aðferðum lista í hugmyndavinnu. Helstu niðurstöður eru að í ljósi breyttra tíma þurfi að endurskilgreina hlutverk og móta sameiginlega stefnu fyrir félagsheimilin í Húnaþingi vestra og að það þurfi einhvern drífandi og sterkan aðila til að stýra húsunum og að það hafist tæplega í sjálfboðastarfi. Í niðurstöðum eru svo einnig dregnar upp myndir af mögulegu framtíðarhlutverki félagsheimilanna. Lykilorð: Listrannsóknir, hugmyndavinna, félagsheimili, Húnaþing vestra.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Auður Arna Oddgeirsdóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23718
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23718