Bifröst University
Tillaga 38 : um möguleika á sameiningu yfirstjórna Íslenska dansflokksins, Íslensku óperunnar, SInfóníuhljómsveitar Íslands og Þjóðleikhússins.
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort hagræðing væri fólgin í því að sameina yfirstjórnir Íslenska dansflokksins, Íslensku óperunnar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Þjóðleikhússins út frá hagræðingartillögu ríkisstjórnarinnar sem sett var fram í nóvember 2013. Í verkefninu var megináherslan á að meta menningarlegt virði stofnananna fyrir sameiningu og skoða hvaða áhrif sameiningin myndi hafa á þetta menningarlega virði og frelsi til sköpunar. Gerð var áhættugreining á tillögu til sameiningar og dregnir fram þeir þættir sem í þessu samhengi voru taldir hafa mesta vægið í sambandi við sameiningu fjögurra mismunandi menningarstofnana. Kenningar John P. Kotter um átta skrefa leið til farsælla breytinga, voru skoðaðar í kjölinn. Þá voru lög um þessar stofnanir höfð til grundvallar ásamt menningarstefnu ríkisins, sem samþykkt var árið 2013. Rannsóknaraðferðin var tilviksrannsókn þar sem viðtöl voru tekin við stjórnendur stofnananna ásamt því að greina fjárhagsleg gögn og niðurstöður settar fram með greinandi framsetningu. Byggt var upp mögulegt skipurit fyrir sameinaða stofnun með það að markmiði að skoða hvernig mætti stilla upp mögulegri sameinaðri stofnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arna Ýr Sævarsdóttir 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23717
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23717