Bifröst University
Sjónvarpið í tölvunni : áhorf ungmenna á sjónvarpsefni og viðhorf þeirra til RÚV
Abstract
dc:description.abstractAukin tölvueign, hraðara internet og tilkoma ýmiskonar snjalltækja auðveldar ungu fólki í nútímanum að velja úr aragrúa þátta, kvikmynda og annars afþreyingarefnis. Margir telja að samfélagsbreytingar og ör þróun á stafrænni miðlun myndefnis hafi afgerandi áhrif miðlanotkun almennings og þar með á hlutverk almannamiðla. Víða um heim þurfa ríkisreknir miðlar að réttlæta tilvist sína og RÚV er engin undantekning á því. Á undanförnum árum hefur stofnunin búið við ítrekaðan niðurskurð og samfélagsumræðu sem einkennist af ágreiningi um tilgang þess að reka hér almannamiðil. Algeng rök gegn rekstri almannamiðla eru að mikil aukning í miðlun myndefnis á internetinu, og minnkandi áhugi almennings á línulegu sjónvarpsáhorfi, sér í lagi meðal ungs fólks, geri ríkismiðilinn úreltan og óþarfan. Til að greina hvað liggur að baki slíkum rökum, miðar þessi rannsókn að því að varpa ljósi á áhorf ungs fólks á myndefni í mismunandi miðlum og viðhorf þeirra til RÚV. Viðtöl voru tekin við úrtak ungmenna á aldrinum 14-17 ára sem leiddu í ljós að stór hluti af áhorfi þeirra á sjónvarpsefni fer fram í tölvum, með streymi eða niðurhali. Bandarískir sjónvarpsþættir eru það efni sem þau kjósa helst að horfa á en áhorf á íslenskt efni eða efni á öðrum tungumálum en ensku er hverfandi lítið. Þátttakendur rannsóknarinnar sögðust sjaldan horfa á RÚV en þegar grennslast var fyrir um viðhorf þeirra til almannamiðilsins kom í ljós að þrátt fyrir að ungmennin nýti sér þjónustu RÚV ekki mikið, þá voru þau flest jákvæð í garð almannamiðilsins og töldu hann gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Þóra Steinþórsdóttir 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/23716
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/23716