Back to search

Bifröst University

Fræðslusjóðir atvinnulífsins tilurð og tilgangur : hver er ávinningurinn af fræðslusjóðum atvinnulífsins fyrir félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands?

Abstract

dc:description.abstract

Frá upphafi verkalýðshreyfingarinnar hafa verkalýðsfélög unnið að því að styrkja og styðja við menntun og færni félaga sinna. Frá árinu 2000 hafa fræðslusjóðir verið eitt af þeim verkfærum sem efla samfélagið, atvinnulífið og verkafólk með því að fjölga tækifærum til símenntunar. Í þessari rannsókn voru skoðuð tilurð, tilgangur og nýting fræðslusjóða hjá félagsmönnum Stéttarfélags Vesturlands með það að markmiði að fá innsýn í ávinning félagsmanna af fræðslusjóðunum. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að minna en 10% af félagsmönnum Stéttarfélagsins sækja sér styrki í fræðslusjóðina. Konur nýta sjóðina í meira mæli en karlar en meðaltalsupphæð styrkja var mun hærri hjá körlum sem voru einnig að þiggja hærri meðaltalsupphæð styrkja á landsvísu. Félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands nýttu fræðslusjóðina mun oftar til tómstundanáms en á landsvísu og má segja að tómstundastyrkir styrki ekki beinlínis vinnumarkaðinn en mannræktarsjónarmiðið er þó þar til grundvallar og það má ekki vanmeta. Mælt er með frekari rannsókn á nýtingu fræðslusjóðanna á landsvísu annars vegar og á því hvort fræðslan sem er veitt nýtist verkafólki í atvinnulífinu eða styrki það á einhvern hátt á vinnumarkaði hins vegar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sjöfn Elísa Albertsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22040
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22040

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sjöfn Elísa Albertsdóttir 1974-. Fræðslusjóðir atvinnulífsins tilurð og tilgangur : hver er ávinningurinn af fræðslusjóðum atvinnulífsins fyrir félagsmenn Stéttarfélags Vesturlands?. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22040